Fyrir nokkrum dögum sendum við stærsta HYDRA kerfið sem hefur verið gert til þessa, til austurstrandar Bandaríkjanna. Stærðin á þessu HYDRA kerfi er þannig að það rétt kemst fyrir í 20 feta gám. Stærðin á þessu kerfi er 50/450 lítrar freon/glycol.
Verkefnið í hnotskurn
Verkefnið felur í sér uppsetningu á nýjum frystivélum, nýtt HYDRA kerfi, uppsetningu á fjórum nýjum lóðréttum frystum og frystingu í lest auk endurnýjunar á öllum stjórnbúnaði.
Uppsetningartími verður mjög stuttur, þrátt fyrir að það þurfi smá æfingar til að koma kerfinu fyrir en það verður gert með því að skera úr hlið á skipinu og koma kerfinu þannig inni í rýmið.
Stór skref tekin á stuttum tíma
Nýjar frystivélar munu keyra 50kg. af freon 449A staðbundið við vélarnar en umhverfisvænn kælivökvi mun streyma frá HYDRA kerfinu inn á plötufrysta og spírala í lest. Þannig er búið að útrýma freon alfarið frá plötufrystum og lestinni. Um borð í þessu skipi er verið að taka um 450kg. af freon úr umferð.
Nýr stjórnbúnaður frá Kælingu Víkurafli fyrir allt kælikerfið í heild sinni tryggir fullkomna og samhæfða stjórnun á frystivél, HYDRA kerfi, plötufrystum og spírulum í lest. Þannig næst nákvæmari stjórnun og mun betri orkunýting og aukin kæliafköst.
Hætta á dýrum tjónum vegna leka er nú úr myndinni
Með HYDRA kerfinu er hættu á fjárhagstjóni og umhverfistjóni vegna freonleka algjörlega lágmörkuð. HYDRA kerfið bætir orkunýtingu og með nýju stjórnkerfi sem nær yfir kerfið í heild sinni næst ennþá meiri rekstrarhagkvæmni og betri orkunýting.
Skipið einungis stopp í 3 vikur
HYDRA verkefnin eru mjög fljót að borga sig upp. Í þessu tilfelli mun skipið sem er gert út á slím á einungis stoppa í 3 vikur. Eftir þennan stutta uppsetningartíma verðu viðskiptavinur okkar kominn með frystikerfi sem stenst allar nýtíma kröfur hvað varðar umhverfismál, rekstrarhagkvæmni og afköst. Þetta er aðgerð sem reiknað er með að borgi sig upp á mjög skömmum tíma.
HYDRA á leið í fleiri erlend skip á næstunni
Á næstu misserum fara fleiri skip frá þessum viðskiptavini í gegnum samskonar endurbætur.









