Útleiðslutöflur
Sjálfvirkar útleiðsluprófanir um borð í skipum
Útleiðslutöflur er hannaðar til að greina útleiðslu frá rafkerfum í skipum. Markmið útleiðslutöflu er að greina útleiðslu strax þannig að unnt sé að bregðast fljótt við áður en bilun verður að stórtjóni og eða skapar hættu.
Útleiðsla frá rafkerfum skipa getur valdið miklum skemmdum á skipi og vélbúnaði með háum viðgerðarkostnaði og miklum óþægindum.
Allur rafbúnaður getur valdið útleiðslu
Nýr einfaldur rafbúnaður getur valdið útleiðslu
Í nútíma fiskiskipum er sífellt verið að innleiða meira af rafbúnaði. Hvert nýtt rafkerfi eða rafbúnaður eykur hættu á útleiðslu. Einföldustu rafkerfi og rafbúnaður getur valdið tæringu og hraðari efnaskiptum í málmum með tilheyrandi bilunum og auknum kostnaði.
Við mælum eindregið með því að öll rafkerfi um borð séu tengd við útleiðslutöflu og vöktuð allan sólarhringinn
Við höfum dæmi þess að lítil rafkerfi sem talin eru saklaus valdi útleiðslu. Nýlegt dæmi er um nýjan myndavélabúnað sem olli útleiðslu.
Útleiðsla getur verið til staðar í langan tíma áður en búnaður bilar og þá geta skemmdir á búnaði verið orðnar víðtækar og ollið miklu tjóni auk þess að skapa hættu um borð.
Útleiðslutöflur í hnotskurn
Sjálvirk vöktun á útleiðslu í öllum raftbúnaði sem er tengdur útleiðslutöflu
- 24 stunda sjálfvirk vöktun allan ársins hring.
- Öll vöktun á útleiðslu á einum stað
- Mögulegt að tengja allan rafbúnað við töflurnar.
- Fyrir 12V & 24V rafkerfi.
- Geta mælt riðstraum (AC) og jafnstraum (DC)
- Mögulegt að vera með fleiri en einn stjórnskjá og staðsetta þar sem hentar.
- Mögulegt að aðlaga fjölda mælipunkta í hverju skipi.
- Mælingar eru skráðar og auðvelt að greina frávik.
Í stuttu máli virkar Útleiðslutafla þannig að hún framkvæmir mælingu á rafbúnað sem er tengdur töflunni og kannar ástand búnaðarins, sem við sjáum sem gult merki ferðast eftir lögnum að búnaðinum á myndbandinu.
Ef búnaður er í lagi þá greinir Útleiðslutaflan að merkið sé grænt og fer í að prófa næsta búnað, svona gengur þetta hring eftir hring samkvæmt skilgreindum mælingatímum allan sólarhringinn.
Ef vart verður við útleiðslu líkt og við sjáum gerast með ískrapatankinn en hann verður rauður í myndbandinu og sendir rautt merki til baka sem er skráð og hægt að virkja sjálfvirk viðbrögð sem felast í að senda boð í síma, tölvupóst o.s.frv.
Hagkvæm leið til að vinna gegn
dýrum bilunum og
auka öryggi um borð
Mikilvægt að greina útleiðslu áður en búnaður stöðvast
Markmiðið er einfalt:
Greina rafmagnsbilanir strax áður en þær verða að rekstrarvandamáli.
Hefðbundin leit að útleiðslu getur verið ómarkviss og tímafrek
Með útleiðslutöflu má koma í veg fyrir kostnaðarsöm tjón og bæta öryggi um borð
Sjálfvirk vöktun allan sólarhringinn 24/7
Útleiðslutöflur frá Kælingu Víkurafli vakta öll rafkerfi skipsins sem eru tengd tölfunni allan sólarhringinn.
Útleiðslutafla tengir hvert rafkerfi sjálfvirkt við útleiðslumæli sem fer sjálfvirkt á milli skilgreindra rása og búnaðar og framkvæmir endurteknar mælingar og skráir niðurstöður. Þannig er kerfið stöðugt að leita að útleiðslu allan sólarhringinn – óháð því hvenær búnaðurinn er í notkun.
Tengingar við önnur vöktunarkerfi
Boðið er upp á að tengja annan búnað sem mælir útleiðslu við útleiðslutöflu og fá þannig allar útleiðslumælingar inn í eitt kerfi sem veitir heildaryfirsýn yfir allar útleiðsluprófanir.
Mögulegt er að færa boðin frá útleiðslutöflu með sjálfvirkum hætti yfir í stærri vöktunarkerfi séu þau til staðar. Þannig er hægt að koma öllum boðum á einn stað og tryggja öruggt viðbragð.
FJARÞJÓNUSTA Í BOÐI
Útleiðslutöflur frá Kælingu Víkurafli bjóða upp á fjarþjónustu
Þjónustuteymi okkar getur tengjast kerfinu hvar sem er svo lengi sem það er netsamband. Fjartengingin er nýtt til að kanna stöðu á búnaðinum, uppfræa og veita þjónustu.
ALLAR MÆLINGAR SKRÁÐAR
Niðurstöður útleiðsluprófana eru skráðar og varðveittar.
Söguleg gögn auðvelda að fylgjast með þróun mæligilda og greina hvort frávik séu tímabundin eða endurtekin.
Fyrir öll rafkerfi og rafbúnað um borð
Ekki aðeins fyrir kælibúnað
Algengt er að tengja nýta útleiðslutöflur við:
- Ískrapavélar
- Sjókæla
- Frystikerfi
- Hitamælikerfi
- Myndavélakerfi
- Fjarskiptabúnað
Notkun á útleiðslutöflum er ekki við bundin kæli- og frystikerfi. Mögulegt er að tengja öll önnur rafkerfi og rafbúnaði skipsins við útleiðslutöflu eftir þörfum.
Auðvelt að sjá í hvaða kerfi útleiðslan er
Ef útleiðsla greinist sést strax í hvaða rafkerfi frávikið mældist.
Þannig fæst skýr greining á stöðu einstakra rafkerfa án þess að þurfa að framkvæma handvirkar prófanir á hverju þeirra.
Einn mælir - mörg kerfi
Öll vöktun allra rafkerfa á einum stað
Útleiðslutöflur fáanlegar í mörgum útfærslum
Útleiðsltöflur í boði
Útleiðslutafla - AC
Útleiðslutafla - DC
Sérhönnun
EINN MÆLIR – EIN YFIRSÝN
Öll vöktun allra rafkerfa á einum stað
- Mörg kerfi.
- Sjálfvirkar útleiðsluprófanir.
- Skráning niðurstaðna.
- Skýr staðsetning frávika.
Hafðu samband og fáðu aðstoð sérfræðinga við að velja útleiðslutöflu sem hentar þínu skipi.