Vöktunarlausnir
Sérsniðnar
vöktunarlausnir
fyrir fyrirtæki
Kæling Víkurafl býður sérsniðnar vöktunarlausnir fyrir fyrirtæki þar sem mikilvægt er að fylgjast með hitastigi, rakastigi, lofttegundum og virkni tækja og búnaðar.
Uppbygging vöktunarlausna
Vöktunarlausnir frá Kælingu Víkurafli samanstanda af þremur megin þáttum:
- Vöktunarkerfi
- Vöktunarbúnaði
- Vöktunarþjónustu
Vöktunarkerfin eru miðlægur stjórnbúnaður og hugbúnaður sem vinnur úr skilaboðum frá vöktunarbúnaði í formi skynjara og nema sem komið er fyrir eftir því sem við á. Vöktunarþjónustan nær svo til þess að vakta kerfi, þjónusta kerfin og veita mannað viðbragð við frávikum.
Sjálfvirkt eftirlit og skýrslugerð
Öryggi og tímasparnaður
Einn af þeim mörgu þáttum sem gera vöktunarlausnir frá Kælingu Víkurafli áreiðanlegar og árangursríkar er stöðugt og sjálfvirkt eftirlit með aðstæðum á starfsstöðvum viðskiptavina og sjálfvirk skráning upplýsinga sem skilað er með sjálfvirkum hætti eins og viðskiptavinir óska eftir.
Dæmi um þetta er möguleikinn á að sækja HACCP-skýrslu með einum smelli. Skýrslan er útbúin að fullu sjálfvirkt og send beint með tölvupósti á einn eða fleiri aðila.
Megin viðfangsefni vöktunarlausna
Vöktunarlausnir eru hannaðar og settar upp til þess að vakta hitatig, rakastig, lofttegundir, virkni tækja og búnaðar og tryggja viðeigandi viðbragð við frávikum með öruggum og áreiðanlegum hætti.
Allur vöktunarbúnaður og vöktunarkerfi í boði
Kæling Víkurafl býður allan búnað, skynjara, kerfi og hugbúnað sem er nauðsynlegur til að byggja upp traustar og áreiðanlegar vöktunarlausnir. Í boði eru staðlaðar lausnir en einnig sérhæfðar útfærslur eftir þörfum hvers og eins.
Áreiðanleg og traust kerfi
Við hönnun og uppsetningu á vöktunarkerfum er mikilvægt að þarfagreina og skilgreina þá þætti sem þarf að vakta.
Kæling Víkurafl býður upp á traust og örugg kerfi með ólíka eiginleika eftir þörfum hvers eins viðskiptavinar.
Skynjarar og nemar fyrir örugga og nákvæma vöktun
Til að byggja traustar og öruggar vöktunarlausnir þurfa allir þættir að vera vel valdir, traustir og áreiðanlegir. Nemar og skynjarar eru þar mjög vikilvægur þáttur. Kæling Víkurafl býður úrval af skynjurum og nemum með ólíka eiginleika og getu.
Áreiðanleg og traust kerfi
Við hönnun og uppsetningu á vöktunarkerfum er mikilvægt að þarfagreina og skilgreina þá þætti sem þarf að vakta.
Kæling Víkurafl býður upp á traust og örugg kerfi með ólíka eiginleika eftir þörfum hvers eins viðskiptavinar.
Kæling Víkurafl býður vöktunarbúnað, vöktunarkerfi og fjölþættar vöktunarlausnir fyrir fyrirtæki.
Mælaborð sem veitir heildaryfirsýn
Í boði er að fá mælaborð veitir skýra og heildræna yfirsýn yfir hitastig, rakastig, lofttegundir, virkni tækja og búnaðar sem hluta af vöktunarlausnum.
Með mælaborði má ávallt hafa yfirsýn yfir öll mikilvæg mæligögn og mögulegt að bregðast hratt og markvisst við ef frávik eða vandamál koma upp, ýmist með sjálfvirkum hætti eða mönnuðu viðbragði.
Tryggðu verðmæti í þínu fyrirtæki
Veldu vöktunarlausnir frá Kælingu Víkurafli og tryggðu verðmæti og starfsfólk í þínu fyrirtæki gegn óvæntum breytingum á hitastigi, rakastigi, loftgæðum og virkni búnaðar og tækja.
Ráðgjafar okkar eru þér til halds og trausts við. að velja réttar vöktunarlausnir fyrir þitt fyrirtæki.
Samstarfsaðilar í vöktunarbúnaði og lausnum
Kæling Víkurafl nýtir m.a. hugbúnað, kerfi, skynjara, nema o.fl. frá Geopal og PolarFoxx en Kæling Víkurafl er umboð- og þjónustuaðili þessara fyrirtækja á Íslandi.