Vöktunarþjónusta

Skilvirk og áreiðanleg
vöktunarþjónusta
fyrir fyrirtæki

Kæling Víkurafl býður skilvirka og áreiðanlega vöktunarþjónustu þar sem mikilvægt er að fylgjast með hitastigi, rakastigi, lofttegundum og virkni tækja og búnaðar hjá fyrirtækjum.

Uppbygging vöktunarþjónustu

Vöktunarþjónusta byggist upp á þremur megin þáttum:

  • Sjálfvirk vöktun og viðbragð
  • Mönnuð vöktun og viðbragð
  • Mannað eftirlit og heimsóknir

Vöktunarkerfin eru miðlægur stjórnbúnaður og hugbúnaður sem vinnur úr skilaboðum frá vöktunarbúnaði í formi skynjara og nema sem komið er fyrir eftir því sem við á. Vöktunarþjónustan nær svo til þess að vakta kerfi, þjónusta kerfin og veita mannað viðbragð við frávikum.

Vöktunarþjónusta eykur öryggi til muna

Vöktunarþjónusta Kælingar Víkurafls er sett upp með það að leiðarljósi að auka öryggi í fyrirtækjum gagnvart afurðum, tækjum, búnaði og starfsfólki.

Með vöktunarþjónustu geta fyrirtæki verið viss um snögg viðbrögð við frávikum sem verða á vöktuðu hitastigi, rakastigi, gastegundum, virkni búnaðar og tækja.

Sjálfvirkt vöktun og viðbragð

Öryggi og tímasparnaður

Fyrirtæki með vöktunarkerfi frá Kælingu Víkurafli geta tengst miðlægu eftirlitskerfi okkar þar sem allt eftirlit, skráning upplýsinga og viðbragð er með sjálfvirkum hætti samkvæmt fyrirframákveðnum skilgreiningum.

Mælingar á hitastigi afurað með handvirkum hætti.

Mönnuð vöktun og viðbragð

Bakvakt allan sólarhringinn

Með því að velja mannaða vöktunarþjónustu tryggja fyrirtæki snöggt mannlegt viðbragð við frávikum sem verða á skilgreindum stöðum vöktunarbúnaðar.

Ef hitastig, eða rakastig breytist, skynjarar nema óæskilegar lofttegundir í vöktuðu rými eða búnaðar og tæki sýna óeðlilega virkni þá getur sjálfvirk vöktun virkjað mannlegt viðbragð hjá vakthafandi tæknifólki okkar. 

Sérþjálfað starfsfólk sem getur bruðist hratt og örugglega við frávikum í virkni kælibúnaðar og rafbúnaðar með öruggum hætti.

Mannað eftirlit og heimsóknir

Skilgreindir tékklistar og skýrslugjöf - Hvað var gert og hvenær

Með mönnuðu eftirliti og heimsóknum taka fyrirtæki mikilvægt skref í átt að því að fyrirbyggja bilanir og óvænt frávik í starfseminni sem tengjast hitastigi, rakastigi, loftgæðum, virkni kælibúnaðar og rafbúnaðar sem falla undir vöktunarþjónustu Kælingar Víkurafls.

Við reglubundið eftirlit og heimsóknir er farið yfir skilgreinda tékklista, ástanda hluta metið, það skráð og tillögur að fyrirbyggjandi aðgerðum lagðar fram með skýrum rekjanlegum hætti.

Vöktunarþjónusta Kælingar Víkurafls. maður á eftirlitsferð, heimsókn til að kanna ástanda kæligeymslu.

Tryggðu verðmæti í þínu fyrirtæki

Veldu vöktunarlausnir frá Kælingu Víkurafli og tryggðu verðmæti og starfsfólk í þínu fyrirtæki gegn óvæntum breytingum á hitastigi, rakastigi, loftgæðum og virkni búnaðar og tækja.

Ráðgjafar okkar eru þér til halds og trausts við. að velja réttar vöktunarlausnir fyrir þitt fyrirtæki.