PolarFoxx
Umboðs- og þjónustuaðili
PolarFoxx
á Íslandi
Kæling Víkurafl er umboðs- og þjónustuaðili PolarFoxx á Íslandi. PolarFoxx er öflugt fyrirtæki í þróun í nútímalegum, stafrænum lausnum fyrir hitamælingar og eftirlit með hitastigi.
LoRaFOXX þráðlausar hitamælingar
Snjöll og örugg lausn fyrir hitastigsvöktun
Ein af nýjustu þróun PolarFoxx, ólíkt Bluetooth-lausninni GFOXX, byggir á öflugri LoRa-tækni sem mælir hitastig í rauntíma og sendir gögnin á öruggan hátt í skýið. Með þessu nýstárlega þráðlausa hitastigsvöktunarkerfi hefur þú aðgang að nákvæmum mæligögnum hvenær sem er og hvar sem er – sem tryggir hámarksstjórn og öryggi.
Með LoRaFOXX þráðlausum hitaskynjurum getur þú ávallt haft yfirsýn yfir hitastigsgögnin, óháð staðsetningu. Þetta gerir mögulegt að greina og hámarka ferla á skilvirkan hátt.
Vegna langdrægi og áreiðanlegri gagnaflutningi getur þessi stafræni, þráðlausi hitamælir orðið mjög mikilvægur þáttur í rekstri og öryggismálum fyrirtækisins.
HACCP-skýrslur –sjálfvirk og áreiðanleg skráning
Nú þarf ekki lengur að vinna með tímafrekri handvirkri skráningu hitastigs – með tilheyrandi villuhættum. Með LoRaFOXX vöktunarkerfinu og þráðlausum hitanemum eru öll hitastigsgildi á vöktunarstöðum skráð sjálfvirkt og send beint inn í kerfið sem er hýst sem skýjalausn.
Og það besta: Við eftirlit er hægt að sækja HACCP-skýrslu með einum smelli. Veldu einfaldlega 1–3 mælitíma sem henta best verklagi í rekstrinum. Enn þægilegra? Skýrslan er útbúin að fullu sjálfvirkt og send beint til þín í tölvupósti og eða til fleiri aðila s.s. eftirlitsaðila!
Viðvörunarstillingar og sjálfvirk skýrslugjöf
Kerfið býður upp á sérsnið á vöktun og viðvörunum. Notendur geta skilgreint sértækar viðvaranir og valið marga móttakendur fyrir tilkynningar. Komi upp frávik, þá er viðvörun sent strax í tölvupósti – eða jafnvel símtal, ef þess er óskað.
Að auki er mögulegt að virkja sjálvirka skýrslugerð og sendingar á þeim. Algengt er að í byrjun hvers mánaðar er send út skýrsla yfir liðinn mánuð með sjálfvirkum tölvupósti – einfalt, þægilegt og án fyrirhafnar!
Mælaborð sem veitir nákvæma yfirsýn
Mælaborðið veitir þér skýra og heildræna yfirsýn yfir alla þráðlausa hitaskynjara sem eru tendir kerfinu. Ef frávik á hitastigi koma upp er hægt að sjá á örskotsstundu hvaða nemi hefur frávik og sjá þau í smáatriðum.
Kerfið greinir á milli fjögurra stöðutilkynninga:
Frávik í hitastigi
Frávik í rakastigi (fyrir nema með rakamælingu)
Tengingarvilla (til dæmis vegna rafmagnsleysis eða tæknilegra vandamála)
Frávik í skýrslugjöf
Með þessu móti má ávallt hafa yfirsýn yfir öll mikilvæg mæligögn og mögulegt að bregðast hratt og markvisst við ef frávik eða vandamál koma upp.
Vöktunarþjónusta
Heildaryfirsýn yfir öll LoRaFOXX
Við innskráningu inn í stjórnkerfið fæst heildaryfirsýn yfir öll LoRaFOXX tæki. Þetta gerir notendum mögulegt að nálgast öll hitagögn hvenær sem er og hvar sem er svo lengi sem þeir eru nettengdir, og skilgreina sértæk markhitabil fyrir hvern þráðlausan hitamæli – hvort sem er í kæli eða frysti.
Að auki má stilla í kerfinu hvenær HACCP-skýrslur eru sjálfvirkt útbúnar og sendar.











