Skynjarar

Áreiðanlegir skynjarar fyrir hita, raka og lofttegundir.

Kæling Víkurafl býður vöktunarlausnir, vöktunarbúnað og vöktunarþjónustu fyrir fyrirtæki sem vinna með hitastýrð rými og þar sem þarf að fylgjast með rakastigi og loftgæðum.

Fyrir öll fyrirtæki sem vilja fylgjast með hitastigi, rakastigi og eða lofttegundum í rýmum.

Kæling Víkurafl er umboðsaðili fyrir Geopal og Polarfoxx sem auk vöktunar og stjórnbúnaðar bjóða hitaskynjara, rakaskynjara og gasskynjara sem má sjá hér fyrir neðan.

Hafðu samband

Ekki hika við að hafa samband við okkur. Við leggjum metnað okkar í að veita framúrskarandi þjónustu og bjóðum aðeins hágæða vöru sem við treystum.

Tölvupóstur

Heimilisfang

Um Kælingu Víkurafl

Kæling Víkurafl ehf. er öflugt þekkingar og þjónustufyrirtæki á sviði hitastýringa og sjálfvirknivæðinga. Við hönnum og framleiðum búnað og lausnir fyrir viðskiptavini í ólíkum atvinnugreinum hér á Íslandi og erlendis. Okkar megin áherslur liggja í öllu sem kemur við hitastýringu á vinnslu og geymslurýmum auk allrar kælingar á afla og afurðum fyrirtækja í sjávarútvegi og matvælaiðnaði en bjóðum einnig lausnir og þjónustu fyrir aðrar atvinnugreinar.

Við erum löggilt rafverktakafyrirtæki og veitum alhliða þjónustu á sviði rafiðnaðar fyrir viðskiptavini okkar. Viðskiptavinir geta látið okkur annast öll rafmagnsmál fyrirtækisins hvort sem þau tengjast okkar búnaði eða ekki.

Kæling Víkurafl veitir víðtæka veita alhliða þjónustu og vöktun þegar kemur að kælibúnaði, kælilausnum og flest öllum rafbúnaði í fyrirtækjum.