Vöktunarbúnaður

Fjölvirkur og áreiðanlegurvöktunarbúnaður

Kæling Víkurafl býður öflugan og áreiðanlegan vöktunarbúnað og lausnir sem geta vaktað, hitastig, lofttegundir og virkni tækja og búnaðar.

Vöktunarlausnir og vöktunarþjónusta hjá Kæling Víkurafl

Vöktunarlausnir og vöktunarþjónusta

Kæling Víkurafl býður allt frá litlum einföldum vöktunarlausnum með einum eða fleiri skynjurum upp í stórar vöktunarlausnir sem fylgjast með af nákvæmni ákveðnum breytingum í umhverfi og eða virkni ákveðinna tækja.

Lausnirnar geta falið í sér sjálfvirk boð, atvikaskráningu og skýrslugjöf en auk þess býður Kæling Víkurafl upp á vöktunarþjónustu með viðbragðsafli.

Vöktunarlausnir

Lausnir og búnaður til vöktunar frá Kælingu Víkurafli er fjölhæfur og áreiðanlegur. Við sérveljum okkar birgja af kostgæfni með öryggi og áreiðanleika að leiðarljósi fyrir okkar viðskiptavini. 

í boði eru gasskynjarar, hitanemar, stjórnbúnaður og vöktunarkerfi með sjálfvirkum boðum og aðgerðum.

Ef þitt fyrirtæki vill geta greint óvæntar gastegundir í andrúmslofti, breytingar á hitastigi í ákveðnum rýmum eða á ákveðnum búnaði þá er kæling með búnaðinn og vöktunarlausnir fyrir þig.

Vöktunarlausnir frá Kælingu Víkurafl

Vöktunarþjónusta

Við höfum mannað viðbragðsafl sem er reiðubúið að bregðast við boðum frá kerfum og lausnum hjá viðskiptavinum okkar.

Algengast er að þjónustan byggi á fyrstu greiningu um leið og boð berast en síðan er ákveðið í framhaldi hver næstu viðbrögð eiga að vera. Allt til að tryggja stuttan viðbragðstíma þegar óvæntir atburðir koma upp, s.s. rafmagnsleysi, bilun í búnaði eða önnur atvík sem geta haft áhrif á hitastig, lofttegundir og virkni búnaðar.

Kynntur þér nánar skynjara, stjórnkerfi og vöktunarlausnir.

Kæling Víkurafl býður vöktunarbúnað, vöktunarkerfi og fjölþættar vöktunarlausnir fyrir fyrirtæki.

Kæling Víkurafl löggildur rafverktaki

Kæling Víkurafl er viðurkenndur rafverktaki

Kæling Víkurafl er viðurkenndur rafverktaki sem veitir alhliða rafþjónustu fyrir íslenskt atvinnulíf.

Viðskiptavinir okkar eru fyrirtæki sem sækjast eftir því að við sjáum alfarið um öll rafmagnsmál í fyrirtækinu eða afmarkaðan hluta.