Kæling Víkurafl er umboðs- og þjónustuaðili Geopal á Íslandi. Geopal þróar framleiðir, selur og þjónustar fullkomin og áreiðanleg gasviðvörunarkerfi til greiningar á nánast öllum gastegundum og eitruðum gufum.
Öflugt og reynslumikið fyrirtæki
Geopal var stofnað 1985
Geopal þróar, framleiðir, selur og annast þjónustu á gasviðvörunarkerfum sem geta numið nánast allar tegundir af gasi og eitruðum gufum.
Geopal og Kæling Víkurafl leggja áherslu á skilvirka vöktun til að tryggjaheilbrigt og öruggt vinnuumhverfi, svo viðskiptavinir okkar og starfsfólk þeirra geti starfað af öryggi og með sterka öryggistilfinningu alla daga.
Allar nauðsynlegar vottanir til staðar
Kæling Víkurafl býður búnað frá Geopal sem býr yfir öllum nauðsynlegum samþykktum og vottunum fyrir framleiðslu, sölu á gasviðvörunarkerfum.
Geopal er vottað samkvæmt ISO 9001:2015 og með ATEX / EX / IECEx vottanir, auk vottunar frá DBI (Danska brunavarna- og öryggistæknistofnunin).
Margar af vörum fyrirtækisins eru ATEX / EX / IECEx- og SIL 2-vottaðar og er hægt að afhenda þær með flokkunarvottorði (Class Certificate) í samræmi við Marine Equipment Directive, frá viðurkenndum flokkunarfélögum á borð við DNV, Lloyd’s og Bureau Veritas.
Helstu vottanir
Hér má nálgast nánari upplýsingar um hverja samþykkt og vottun ásamt viðeigandi skírteinum: