Stærsta HYDRA kerfið á leið til BNA

Fyrir nokkrum dögum sendum við stærsta HYDRA kerfið sem hefur verið gert til þessa, til austurstrandar Bandaríkjanna. Umfangið er þannig að það rétt rúmast fyrir í 20 feta gám. Stærð þessa kerfis er 50/1500 kg. freon/kuldaberi.

Verkefnið í hnotskurn

Verkefnið felur í sér uppsetningu á nýjum frystivélum, nýtt HYDRA kerfi, uppsetningu á fjórum nýjum lóðréttum frystum og frystingu í lest auk endurnýjunar á öllum stjórnbúnaði.

Uppsetningartími verður mjög stuttur,  þrátt fyrir að það þurfi smá æfingar til að koma kerfinu fyrir en það verður gert með því að skera úr hlið á skipinu og koma kerfinu þannig inni í rýmið.

Stór skref tekin á stuttum tíma

Nýjar frystivélar munu keyra 50 kg. af freon R449A staðbundið við vélarnar en 1500 kg. umhverfisvænn kælivökvi mun streyma frá HYDRA kerfinu inn á plötufrysta og spírala í lest. Þannig er búið að útrýma freon alfarið frá plötufrystum og lestinni. Um borð í þessu skipi er verið að taka um 1.450 kg. af freon úr umferð.

Nýr stjórnbúnaður frá Kælingu Víkurafli fyrir allt kælikerfið í heild sinni tryggir fullkomna og samhæfða stjórnun á frystivél, HYDRA kerfi, plötufrystum og spírulum í lest. Þannig næst nákvæmari stjórnun og mun betri orkunýting og aukin kæliafköst.

Hætta á dýrum tjónum vegna leka er nú úr myndinni

Með HYDRA kerfinu er hættu á fjárhagstjóni og umhverfistjóni vegna freonleka algjörlega lágmörkuð. HYDRA kerfið bætir orkunýtingu og með nýju stjórnkerfi sem nær yfir kerfið í heild sinni næst ennþá meiri rekstrarhagkvæmni og betri orkunýting.

Skipið einungis stopp í 3 vikur

HYDRA verkefnin eru mjög fljót að borga sig upp. Í þessu tilfelli mun skipið sem er gert út á slím á einungis stoppa í 3 vikur. Eftir þennan stutta uppsetningartíma verðu viðskiptavinur okkar kominn með frystikerfi sem stenst allar nýtíma kröfur hvað varðar umhverfismál, rekstrarhagkvæmni og afköst. Þetta er aðgerð sem reiknað er með að borgi sig upp á mjög skömmum tíma.

HYDRA á leið í fleiri erlend skip á næstunni

Á næstu misserum fara fleiri skip frá þessum viðskiptavini í gegnum samskonar endurbætur.

Facebook
Twitter
LinkedIn

Fleiri fréttir

Til hamingju með sjómannadaginn 2026

Til hamingju með sjómannadaginn

Til hamingju með daginn. Kæru sjómenn og fjölskyldur ykkar, innilega til hamingju með daginn. Sjómannadagurinn er merkilegur dagur sem verðugt er að

Hydra kælispíralar í lestarkælingu

Stærsta HYDRA kerfið á leið til BNA

Fyrir nokkrum dögum sendum við stærsta HYDRA kerfið sem hefur verið gert til þessa, til austurstrandar Bandaríkjanna. Umfangið er þannig að það

HYDRA sett um borð í Núp BA 69

Vinsældir HYDRA lausnarinnar aukast hratt

Það er mikið framundan hjá Kælingu Víkurafli við endurnýjanir og uppfærslur á lestarkælingum. Við höfum verið að vinna í lotu með fjórum

Comments are closed.