Í kjölfar frétta af netárásum á kæli- og iðnstýringarkerfi víða um heim vill Kæling Víkurafl upplýsa viðskiptavini sína um stöðuna og þá vinnu sem stendur yfir við yfirferð öryggismála.
Miðað við þær upplýsingar sem liggja fyrir í dag höfum við engar vísbendingar um að öryggi þeirra kerfa sem við þjónustum hafi verið rofið.
Við höfum undanfarið unnið að yfirferð öryggismála þeirra kerfa sem við þjónustum, með sérstaka áherslu á fjartengingar og aðgangsstýringar.
Við notum meðal annars CAREL RED lausnir til fjartenginga og eftirlits með kælikerfum. Þær eru hluti af þeim lausnum sem við byggjum á við örugg samskipti við kerfin, samhliða yfirferð öryggisstillinga og aðgangsheimilda.
Við höldum áfram að fylgjast með þróun mála, yfirfara öryggisstillingar og gera nauðsynlegar ráðstafanir til að stuðla að sem bestu öryggi þeirra kerfa sem við berum ábyrgð á.
Öryggi og rekstrarsamfella kælikerfa viðskiptavina okkar eru okkur afar mikilvæg. Við tökum þessa þróun alvarlega og vinnum áfram að því að draga úr áhættu og styðja við öruggan rekstur.
Viðskiptavinir sem hafa spurningar eða óska eftir frekari upplýsingum eru velkomnir að hafa samband við okkur.
Kæling Víkurafl ehf.


