Það er mikið framundan hjá Kælingu Víkurafli við endurnýjanir og uppfærslur á lestarkælingum. Við höfum verið að vinna í lotu með fjórum skipum þar sem koma á HYDRA lausn um borð og minnka þar með freon notkun við lestarkælingu um allt að 90%, og útrýma freoni algjörlega úr lestarrýmum.
Einstaklega stuttur uppsetningartími
Hydra er ein af þessum einstöku lausnum sem er fljótleg í uppsetningu. Algengur uppsetningartími er ein vika, en fer að sjálfsögðu eftir umfangi og aðstæðum hverju sinni. Ef endurnýja þarf lagnir þá taka verkefnin lengri tíma en ef þær eru góðar þá tekur innleiðing á HYDRA mjög stuttan tíma.
Þessi lausn getur verið mjög fljót að borga sig upp og dregur verulega úr umhverfislegri og fjárhagslegri áhættu freon lekum.
HYDRA kerfið nýlega komið um borð í Núp BA 69
Kæling Víkurafl hefur nýlega lokið vinnu um borð í Núp BA 69 við að endurnýja lestarkælinguna og setja upp Hydru.
Saga þessa skips er áhugaverð en upprunalega var þetta skip smíðað sem frystiskip og hét þá Tjaldur II, gerður út af KG fiskverkun á Rifi, þá var hann með tvo lóðrétta plötufrysta, einn lausfrysti og frystilest, á kerfinu voru um 1500 kg af kælimiðli.
Fyrir um 15 árum breyttum við í Kælingu Víkurafli þessu kerfi þannig að einungis var haldið kælingu í lestinni, eftir þær breytingar varð kælimiðils magn á kerfinu um 60 kg. Þetta skip er mjög gott dæmi um hvernig reglulegar uppfærslur og nýting tækninýjunga stuðlar að hámarks rekstrarhagkvæmni.
Hydran er einmitt dæmi um umhverfisvæna tækninýjung sem er fljót og að borga sig. Það var því mjög ánægjulegt að fá tækifæri til að vinna með útgerðafélaginu Odda og að fara enn og aftur um borð í Núp 69 til að auka enn frekar hagkvæmni og öryggi í rekstri þess. Eftir nýjustu breytingar einungis um 10 kg af freoni á kerfinu, staðbundið við kælivélina og -10°C glýcoli dælt inn á kælispírala lestarinna til að ná fram kælingu.
Fleiri skip fá HYDRA kerfi á næstunni
Næstu skip eru þrjú skip frá Skinney Þinganesi:
- Steinunn SF-10
- Skinney SF-20
- Þinganes SF-25
En um borð í þessum skipum á að draga á úr freon notkun um allt að 90% og hald þeirri notkun við kælivélina og nýta umhverfisvæna kælimiðla á kælispírulum og restinni af kerfinu.
Áætlað er að klára að endurnýjun um borð í Skinney Þinganes skipunum í september 2026.


