Fullkomin kæling frá upphafi til enda

Alhliða kælilausnir fyrir sjávarútveg og matvælaiðnað

Hámörkun ferskleika

Markmið okkar er að framleiða hágæða kælilausnir sem hámarka verðmæti sjávarafurða og matvæla hjá viðskiptavinum okkar.

Við gerum þetta með framúrskarandi kælibúnaði sem byggir á áratuga reynslu og vöruþróun.

Kælibúnaður

Kynntu þér kælibúnað og kælilausnir
frá Kælingu

Íslaus kæling með sjókælum

Kæling hefur í samvinnu við valin fyrirtæki hannað byltingarkennda íslausa kælilausn þar sem kælingin fer fram með kældum sjó í hringrásarkerfum sem hámarka orkunýtingu og spara á sama tíma og gæði aflans eru hámörkuð.

Fyrsta flokks framleiðsla

Við framleiðum fyrsta flokks kælibúnað fyrir þá sem vilja nýta nútíma kælitækni til að hámarka ferskleika í matvælum.

Skráðu þig á póstlistann hjá okkur

Skráning á póstlista

Fáðu sendar fréttir og fróðleik um nýjungar í kælilausnum og leiðir til að auka gæði afla og matvæla með réttri kælingu.

Þjónustan

Áreiðanleg og góð þjónusta
um allt land

Starfsfólk Kælingar hefur yfirgripsmikla þekkingu og reynslu af fiskiðnaði sem stendur undir ítrustu kröfum. 

Þessi þekking gerir okkur mögulegt að aðlaga búnaðinn aðstæðum í hverju skipi og tryggja þannig bestu mögulegu afköst og fullkomna kælingu.

Við leggjum áherslu á að þróa búnað sem þolir álagið við erfiðar aðstæður. Við vitum hversu mikilvægur aflinn er og leggjum okkar að mörkum að honum sé komið sem ferskustum til lands. Okkar metnaður liggur í að veita góða þjónustu og aðstoða viðskiptavini okkar að halda búnaðinum í toppstandi með reglulegu viðhaldi.

6M2A1769

Hafðu samband

Heyrðu í okkur

Við erum boðin og búin til að aðstoða og viljum hjálpa þér að tryggja ferskleika hráefnisins. 



    Stapahraun 6, 220 Hafnarfjörður, Iceland

    Sími: +354 565-7918

    Farsími: +354 891-7918