Mikill fjöldi á sýningarbás Kælingar

Það var vel mætt og góð stemning á sýningarbás Kælingar á Sjávarútvegssýningunni 2022 í Fífunni. 

Margir góðir gestir stöldruðu við hjá Kælingu til að kynna sér nýjungar og ræða þau fjölmörgu tækifæri sem nú bjóðast á sviði kælitækni bæði til að auka aflaverðmæti en einnig til að auka rekstrarhagkvæmni og velja umhverfisvæna kælingalausnir.

Heimsóknir erlendra gesta eru oft mjög áhugaverðar á svona sýningum og þessi var engin undantekning. Við hér á Íslandi gerum okkur ekki oft grein fyrir hversu öflug íslensk sjávarútvegsfyrirtæki eru í því að innleiða betri tækni og umhverfisvænni lausnir í samanburði við erlend fyrirtæki. 

Eitt af því sem við tökum tökum nánast sem sjálfsögðum hlut í dag er að framleiða allan ís um borð úr sjó en það virðist mjög algengt að erlend skip þurfi að kaupa og tanka verulegt magni áður en haldið er á miðinn til þess að geta framleitt ís um borð. 

Við hjá Kælingu viljum þakka öllum sem lögðu leið sína á bás okkar og skipuleggjendum fyrir góða sýningu og þá sérstaklega fyrir verðlaunin sem Kæling hlut fyrir sýningarbásinn á sýningunn

Takk fyrir okkur.

 

Facebook
Twitter
LinkedIn

Fleiri fréttir

Til hamingju með sjómannadaginn 2026

Til hamingju með sjómannadaginn

Til hamingju með daginn. Kæru sjómenn og fjölskyldur ykkar, innilega til hamingju með daginn. Sjómannadagurinn er merkilegur dagur sem verðugt er að

Hydra kælispíralar í lestarkælingu

Stærsta HYDRA kerfið á leið til BNA

Fyrir nokkrum dögum sendum við stærsta HYDRA kerfið sem hefur verið gert til þessa, til austurstrandar Bandaríkjanna. Umfangið er þannig að það

HYDRA sett um borð í Núp BA 69

Vinsældir HYDRA lausnarinnar aukast hratt

Það er mikið framundan hjá Kælingu Víkurafli við endurnýjanir og uppfærslur á lestarkælingum. Við höfum verið að vinna í lotu með fjórum

Add a Comment

Your email address will not be published. Required fields are marked *