Útleiðslutöflur

Útleiðslutafla er hönnuð til að greina útleiðslu frá rafkerfum í skipum. Útleiðsla frá rafkerfum skipa getur valdið miklum skemmdum á skipi og vélbúnaði með háum viðgerðarkostnaði og miklum óþægindum.

Mögulegt er að færa boðin með sjálfvirkum hætti yfir í vöktunarkerfi sé það til staðar.

Útleiðslutöflur eru fáanlegar bæði fyrir riðstraum (AC) og jafnstraum (DC) allt eftir þörfum hvers og eins.

Útleiðslutafla er hönnuð til að greina útleiðslu frá rafkerfum í skipum. Útleiðsla frá rafkerfum skipa getur valdið miklum skemmdum á skipi og vélbúnaði með háum viðgerðarkostnaði og miklum óþægindum. Með útleiðslumælingu í útleiðslutöflu frá Kælingu Víkurafli er hægt að fylgjast nákvæmlega með hvort útleiðsla sé til staðar og frá hvaða kerfi hún kemur. Þannig er mögulegt hægt sé að bregðast strax við og koma þannig í veg fyrir að tjón hljótist af biluninni. Mögulegt er að færa boðin með sjálfvirkum hætti yfir í vöktunarkerfi sé það til staðar. Útleiðslutöflur eru fáanlegar bæði fyrir riðstraum (AC) og jafnstraum (DC) allt eftir þörfum hvers og eins.

Sjáðu hvernig Útleiðslutafla virkar

Í stuttu máli virkar Útleiðslutafla þannig að hún sendir mælingu á rafbúnað sem er tengdur töflunni og kannar ástanda búnaðarins, sem við sjáum sem gult merki á myndbandin.

Ef búnaður er í lagi þá greinir Útleiðslutaflan að merkið sé grænt og fer í að prófa næsta búnað, svona gengur þetta hring eftir hring samkvæmt skilgreindum mælingatímum.

Ef það kemur upp útleiðsla líkt og við sjáum gerast með ískrapatankinn en hann verður rauður í myndbandinu og sendir rautt merki til baka sem er skráð og hægt að virkja sjálfvirk viðbrögð sem felast í að senda boð í síma, tölvupóst o.s.frv.

Category
Shopping Basket