- 565-7918
- info@cooling.is
- Mán - Fös: 8:00 - 17:00
KP-6W vatnskælir afkastar allt að 700 lítrum á klukkstund af vatni sem er kælt niður í allt að -2°C. Saltinnihald þarf að vera 2,6% NaCI að lágmarki. Ef auka þarf saltinnihald er hægt að nýta saltpækilkerfi. Vatnsnotkun við 15° er allt að 1.000 lítrar á klukkustund og síun 100 míkron.
Vatnskælar frá Kælingu ehf. eru í hæsta gæðaflokki og hannaðir sem hagkvæmur valkostur í nútíma kælitækni til að hámarka aflaverðmæti. Vatnskæla má nota á mörum stigum matvælavinnslu og sjávarútvegi.
Kalt vatn er afar hentugt til að tryggja rétt hitastig afla og afurða á ýmsum framleiðslustigum og þar til geymslukæling hefst.
Vatnskælar geta boðið upp á úttöku á miskældu vatni fyrir ólík vinnslustig. Þannig er hægt að vera með fullkomna kælingu á öllum stigum og hámarka gæði afla og afurða. Rétt kæling hægir á vexti gerla og minnkar virkni ensíma.
Vatnshiti getur verið hærri en það hitastig sem hentar best til að varðveita verðmæti afla og afurða. Því getur vatn sem tekið er beint úr veitukerfum og eða þegar verið er við veiðar á stærri vötnum (erlendis) sem notað er beint við vinnslu án kælingar hraðað því að afli eða afurðir missi ferskleika sinn. Vatnshiti getur verið mjög breytilegur eftir árstíðum sem hefur áhrif á afkastagetu sjókæla. Tölvustýrðir skynjarar og sérhæfður hugbúnaður hámarka flæði í gegnum vatnskæli á hverjum tíma þannig að ávallt er hægt að vinna með hárrétt kælistig á öllum vinnslustigum.
KP-6W vatnskælir afkastar allt að 700 lítrum á klukkstund af vatni sem er kælt niður í allt að -2°C. Saltinnihald þarf að vera 2,6% NaCI að lágmarki. Ef auka þarf saltinnihald er hægt að nýta saltpækilkerfi. Vatnsnotkun við 15° er allt að 1.000 lítrar á klukkustund og síun 100 míkron.
Vatnskæla frá Kælingu ehf. eru með kælipressu sem drifin er af 3 fasa rafmagni, eimsvala, títanvarmaskipti ásamt tölvustýrðum stýrilokum og stjórnlokum. Stjórntöflu má staðsetja nánast hvar sem er og mögulegt að hafa fleiri en einn stjórnskjá.
Algengt er að velja saman vatnskæli og ískrapavél. Nauðsynlegt er að kæla saltblönduðu vatni niður í 0° áður en það fer inn á ískrapavélar til að viðhalda fullum afköstum hennar.
Við hönnun og framleiðslu á vatnskælum er ávallt valinn besti mögulegi búnaður og bestu fáanleg efni á hverjum tíma. Vatnskælarnir hafa þá sérstöðu að vera framleiddir með títan- plötuvarmaskipti sem eykur bæði afköst og endingu verulega. Með reglulegu viðhaldi uppfærslum á vatnskælum má reikna með endingu í allt að 25 ár eða jafnvel lengur.
Vatnskælar eru hagkvæmur búnaður til að auka aflaverðmæti. Vatnskælirinn dælir vatni inn og kælir það niður, algengt niður í -2°C áður en því er t.d. dælt í kör. Afli eða afurðir eru settur í kar með vatni við það hitastig sem hentar best hverju stigi í vinnslunni um borð. Þannig er ferskleika fisksins og hámörkun verðmæti hans tryggð þegar komið er að landi.
Vatnskælar geta endurunnið áður kælt vatn sem hefur verið nýttur til kælingar. Vatni er þá dælt frá körum inn á vatnskælirinn sem kælir vatnið aftur í það kælistig sem vinna á með. Með þessu næst umtalsverður orkusparnaður þar sem ekki þarf að kæla vatnið jafn mikið niður eins og þegar honum var dælt um borð upprunalega.
KP-6W vatnskælir er öflugur kælir
5 kW | |
Kæliafköst: | 6kW |
Kæliafköst 10°C-2°C: | 700 l/klst. |
Lágmarks saltinnihald: | 2,6% NaCI |
Utanmál í mm (LxBxH): | 1200x500x725 |
Þyngd: | 180 kg |
Kælimiðill: | 404A/449A |
Sjósíun: | 100 my |
Sjónotkun við 15°: | 1.000 l/klst. |
Ekki hika við að hafa samband við okkur. Við leggjum metnað okkar í að veita framúrskarandi þjónustu og bjóðum aðeins hágæða vöru sem við treystum og vitum að skilar auknum aflaverðmætum.
Við eigum margar tegundir af vatnskælum og sérsmíðum einnig eftir þörfum hvers og eins. Vatnskælar eru því fáanlegir í öllum stærðum hjá Kælingu.
Kæling ehf. er meðal leiðandi fyrirtækja á sviði kæli-, frysti- og ískrapakerfa, einkum fyrir sjávarútveg og matvælaiðnað. Fyrirtækið framleiðir meðal annars krapavélar, sjókæla og kælikerfi fyrir fiskiskip. Kerfin hafa náð fótfestu bæði hér á landi og erlendis enda varðveita þau gæði og ferskleika hráefnisins við vinnslu þess og geymslu í skipunum.