BS-5000 Saltpækilkerfið getur blandað allt að 5.000 lítrum á klst. af 3% saltblöndu. Orkuþörfin eru 3kw @400V/50Hz
Saltpækilkerfi eða Brine system eru notuð til þess að búa til saltblöndu úr ferskvatni, eða til þess að auka saltstyrk á sjó sem þegar er fyrir hendi. Yfirleitt er verið að ná upp saltinnihaldi í vatni eða sjó til að nota til kælinga með ískrapavélum. En ískrapavélar verða að taka inn vatn eða sjó sem er með saltinnhald að lágmarki frá 2,5%. Algengt er að sjór sé með um 3% saltinnihaldi.
Hvernig virkar saltpækilkerfi
Í upphafi er saltpækill er búin til með því að taka gróft salt og leysa það upp í vatni, úr verður sterkur saltpækill sem er um 26%, saltpæklinum er því næst blandað við ferskvatn til þess að blanda 3% saltupplausn. Einnig má auka saltinnihald upp í allt að 5% bæði á vatni eða sjó og þar með er hægt að ná eða blandað saman við sjó og þá má ná kulda á ískrapa niður í allt að -5°.
Saltpækilkerfi þarf að tengja við vatnsleiðslu eða geta dælt sjó óhindrað inn á kerfið. Í gegnum stjórnbúnað er saltinnihaldi blöndunar stjórnað og alfarið sjálfvirkt eftir það fyrir utan að hella þarf salti í saltkarið.
Áfylling
Yfirleitt þarf að fylla á saltkarið einu sinni á sólarhring. Mögulegt er að fá lyftubúnað sem lyftir allt að 500kg. saltsekkjum yfir karið sem auðveldar áfyllingu.
BS-5000 Saltpækilkerfi í hnotskurn
BS-5000 Saltpækilkerfið getur blandað allt að 5.000 lítrum á klst. af 3% saltblöndu. Orkuþörfin eru 3kw @400V/50Hz
Hönnun og hreinlæti:
BS-5000 saltpækilkerfið er hannað samkvæmt EN1672-2:1997 staðli fyrir vélbúnað í matvælavinnslur. Allt efni sem notað er í búnaðinn er úr stáli og öðru efni sem samþykkt er til notkunar í matvælavinnslu. Allt er gert til að auðveld þrif og tryggja hreinlæti.
Allur rafbúnaður er vel rakaþéttur og þolir þrif með sápu.
Tæknilisti BS-5000
Blöndunargeta:
5.000 l/klst.
Stærð á salttanki:
1.000 lítrar
Stærð á saltpækilsttánki:
330 lítrar
Orkunotkun 380 V / 440 V 50/60 Hz:
3 kW max
Utanmál í mm (LxBxH):
2000x1400x1600
Þyngd:
220 kg
Efni:
Ryðfrítt stál og plast fyrir matvælaframleiðslu
Hafa samband
Ekki hika við að hafa samband við okkur. Við leggjum metnað okkar í að veita framúrskarandi þjónustu og bjóðum aðeins hágæða vöru sem við treystum og vitum að skilar auknum aflaverðmætum.
Við eigum margar tegundir af sjókælum sem henta öllum stærðum fiskiskipa.
[contact-form-7 id=“17″ title=“Contact form 1″]
Um Kælingu
Kæling ehf. er leiðandi fyrirtæki á sviði kælilausna fyrir sjávarútveg. Við vinnum stöðugt að því markmiði að viðskiptavinir okkar geti hámarkað aflaverðmæti með réttri kælingu á öllum stigum. Kælilausnir frá Kælingu hafa náð fótfestu bæði hér á landi og erlendis enda hafa þau staðið fyrir gæði, áreiðanleika, afköst, endingu og góða þjónustu.