Viltu vinna við nýsköpun og þjónustu í kælitækni? Kæling leitar eftir öflugum starfskröftum í framleiðslu, uppsetningu og þjónustu á kælikerfum og kælibúnaði.
Kæling er framsækið fyrirtæki í hönnun og framleiðslu, uppsetningu og viðhaldi á kælikerfum og ískrapavélum. Fyrirtækið selur og þjónustar kælibúnað á Íslandi og í Norður Ameríku.
Um er að ræða framtíðarstarf. Viðkomandi aðili verður að geta hafið störf sem fyrst.
Starfssvið
- Reglubundið eftirlit og viðhald kælikerfa
- Samsetning á kælibúnaði og kælitækjum í starfstöð Kælingar
- Uppsetning og þjónusta á kælibúnaði og kælitækjum hjá viðskiptavinum
- Nýsmíði – málmvinnsla
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun eða reynsla á sviði kælitækni og eða vélstjórnunar æskileg
- Reynsla og þekking á málmiðnaði
- Jákvæðni og áhugasemi í starfi.
- Sveigjanleiki í starfi og lausnamiðuð hugsun.
- Sjálfstæð í vinnubrögð
ATH: Við hvetjum laghenta og reynslumikla aðila til að sækja um þó að menntun skorti.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Atli Steinn Jónsson, framkvæmdastjóri í gegnum tölvupóst atli@cooling.is
Umsóknir sendist á info@cooling.is Umsóknarfrestur er til og með 31. mars 2018