Útleiðslutöflur
Sjálfvirkar útleiðsluprófanir um borð í skipum
Útleiðslutöflur er hannaðar til að greina útleiðslu frá rafkerfum í skipum. Megin hlutverk útleiðslutöflu er að greina útleiðslu strax þannig að unnt sé að bregðast fljótt við áður en bilun verður að stórtjóni og eða skapar hættu.
Útleiðsla frá rafkerfum skipa getur valdið miklum skemmdum á skipinu sjálfu, vélbúnaði og öðrum tækjabúnaði um borð, með háum viðgerðarkostnaði og miklum óþægindum.
Allur rafbúnaður getur valdið útleiðslu
Nýr einfaldur rafbúnaður getur valdið útleiðslu
Í nútíma fiskiskipum er sífellt verið að innleiða meira af rafbúnaði. Hvert nýtt rafkerfi eða rafbúnaður eykur hættu á útleiðslu. Einföldustu rafkerfi og rafbúnaður geta valdið tæringu og hraðari efnaskiptum í málmum með tilheyrandi bilunum, styttri líftíma og auknum kostnaði.
Við mælum eindregið með því að öll rafkerfi um borð séu tengd við útleiðslutöflu og vöktuð allan sólarhringinn
Við höfum dæmi þess að lítil rafkerfi sem talin eru saklaus valdi alvarlegri útleiðslu. Nýlegt dæmi er um nýjan myndavélabúnað sem olli útleiðslu sem hefði getað skapað stórtjón.
Útleiðsla getur verið til staðar í langan tíma áður en búnaður bilar og þá geta skemmdir á búnaði verið orðnar víðtækar og ollið miklu tjóni auk þess að skapa hættu um borð.
Útleiðslutöflur í hnotskurn
Sjálfvirk vöktun á útleiðslu í öllum rafbúnaði sem er tengdur útleiðslutöflu
- 24 stunda sjálfvirk vöktun allan ársins hring.
- Öll vöktun á útleiðslu á einum stað
- Mögulegt að tengja allan rafbúnað við töflurnar.
- Fyrir 12V | 24V | 230 VAC | og 400 VAC rafkerfi.
- Geta mælt riðstraum (AC) og jafnstraum (DC)
- Mögulegt að vera með fleiri en einn stjórnskjá og staðsetta þar sem hentar.
- Mögulegt að aðlaga fjölda mælipunkta í hverju skipi.
- Mælingar eru skráðar og auðvelt að greina frávik.
Í stuttu máli virkar útleiðslutafla þannig að hún framkvæmir útleiðsluprófanir á rafbúnaði sem er tengdur töflunni og kannar ástand búnaðarins, sem við sjáum sem gult merki ferðast eftir lögnum að búnaðinum í myndbandinu.
Ef búnaður er í lagi þá greinir útleiðslutaflan að merkið sé grænt og fer í að prófa næsta búnað, svona gengur þetta hring eftir hring samkvæmt skilgreindum mælingatímum allan sólarhringinn.
Ef vart verður við útleiðslu líkt og við sjáum gerast með ískrapatankinn en hann verður rauður í myndbandinu og sendir rautt merki til baka sem er skráð og hægt að virkja sjálfvirk viðbrögð sem felast í að senda boð í síma, tölvupóst o.s.frv.
Hagkvæm leið til að vinna gegn
kostnaðarsömum bilunum og
auka öryggi um borð
Mikilvægt að greina útleiðslu áður en búnaður stöðvast
Markmiðið er einfalt:
Að greina breytingar á einangrun rafkerfa áður en þær þróast í alvarlegar bilanir, rekstrarstöðvun eða tjón.
Hefðbundin leit að útleiðslu getur verið ómarkviss og tímafrek
Með útleiðslutöflu má koma í veg fyrir kostnaðarsöm tjón og bæta öryggi um borð
Sjálfvirk vöktun 24/7
Endurteknar útleiðsluprófanir á rafkerfum allan sólarhringinn
Útleiðslutöflur frá Kælingu Víkurafli vakta öll rafkerfi skipsins sem eru tengd töflunni allan sólarhringinn.
Útleiðslutafla tengir hvert rafkerfi sjálfvirkt við útleiðslumæli sem fer sjálfvirkt á milli skilgreindra rása og rafbúnaðar og framkvæmir endurteknar mælingar og skráir niðurstöður. Þannig er kerfið stöðugt að leita að útleiðslu allan sólarhringinn – óháð því hvenær búnaðurinn er í notkun.
Tengingar við önnur vöktunarkerfi
Mögulegt er að tengja annan mælibúnað fyrir útleiðslu við útleiðslutöflur frá Kælingu Víkurafli og fá þannig merki um bilanir frá öðrum kerfum inn í eitt kerfi sem veitir heildaryfirsýn yfir allar útleiðsluprófanir.
Mögulegt er að færa boðin frá útleiðslutöflu með sjálfvirkum hætti yfir í stærri vöktunarkerfi séu þau til staðar. Þannig er hægt að koma öllum boðum á einn stað og tryggja heildar yfirsýn og öruggt viðbragð.
FJARÞJÓNUSTA Í BOÐI
Útleiðslutöflur frá Kælingu Víkurafli bjóða upp á fjarþjónustu
Mögulegt er að fá útleiðslutöflur með fjartengingu sem aukabúnað. Fjartenging opnar fyrir það að þjónustuteymi okkar geti tengst kerfinu hvar sem er svo lengi sem það er netsamband. Fjartengingin er notuð til að kanna stöðu á búnaðinum, uppfæra og þjónusta búnaðinn.
ALLAR MÆLINGAR SKRÁÐAR
Niðurstöður útleiðsluprófana eru skráðar og varðveittar.
Söguleg gögn auðvelda að fylgjast með þróun mæligilda og greina hvort frávik séu tímabundin eða endurtekin.
Fyrir öll rafkerfi og rafbúnað um borð
Ekki aðeins fyrir kælibúnað
Algengt er að tengja útleiðslutöflur við:
- Ískrapavélar
- Sjókæla
- Frystikerfi
- Hitamælikerfi
- Myndavélakerfi
- Fjarskiptabúnað
- Ýmsar vinnslulínur
Notkun á útleiðslutöflum er ekki við bundin kæli- og frystikerfi. Mögulegt er að tengja öll önnur rafkerfi og rafbúnaði skipsins við útleiðslutöflu eftir þörfum.
Auðvelt að sjá í hvaða kerfi útleiðslan er
Ef útleiðsla greinist sést strax í hvaða rafkerfi frávikið mældist.
Þannig fæst skýr greining á stöðu einstakra rafkerfa án þess að þurfa að framkvæma handvirkar prófanir á hverju þeirra.
Einn mælir - mörg kerfi
Öll vöktun allra rafkerfa á einum stað
Útleiðslutöflur fáanlegar í mörgum útfærslum
Útleiðslutöflur í boði
Útleiðslutafla - AC
Útleiðslutafla - DC
Sérhönnun
EINN MÆLIR – EIN YFIRSÝN
Öll vöktun allra rafkerfa á einum stað
- Mörg kerfi.
- Sjálfvirkar útleiðsluprófanir.
- Skráning niðurstaðna.
- Skýr staðsetning frávika.
Hafðu samband og fáðu aðstoð sérfræðinga við að velja útleiðslutöflu sem hentar þínu skipi.