Ískrapatankur 1500 lítrar

Ískrapatankar til geymslu á ískrapa. Góð lausn þar sem nýta þarf mikinn ískrapa á stuttum tíma. Tengist við ískrapavélar frá Kælingu Víkurafli. Ískrapavélar má tengja eingöngu við tankinn en einnig hægt að dæla ískrapa beint frá ískrapavélunum á þá staði sem þess er þörf. Ískrapavélar sjá til þess að ískrapatankur sé fullur og bæta inn á hann eftir þörfum.

Ískrapatankur með tvöföldu lagi og góðri einangrun. Getur geymt 1500 lítra af ískrapa og eru tilbúinn með ískrapa þegar kæla þarf mikið magn á stuttum tíma.

Ískrapatankar frá Kælingu eru gæðavara og óhætt að treysta á þá. Kæling leggur mikinn metnað í Ískrapatanka og allar okkar vörur þannig að þær standist fyllilega allan samanburð varðandi gæði og bestu mögulegu þjónustu.

Tankana er auðvelt að nota til að geyma ískrapa og þannig ertu ávallt með nægan ískrapa þegar nota mikið magn á skömmum tíma. Það getur komið sér afar vel, sérstaklega þegar vel ber í veiði.

Ískrapatankar eru framleiddir í eftirtöldum stærðum:

  • 1500 lítra rúmmál. (LxBxH) 1800x1340x1460 mm
  • 2000 lítra rúmmál. (LxBxH) 2310x1340x1460 mm
  • 3000 lítra rúmmál. (LxBxH) 3230x1340x1460 mm (sjá mynd)
  • 4000 lítra rúmmál. (LxBxH) 4160x1340x1460 mm

Ískraptanka er hægt að fá í lóðréttum og láréttum útfærslum.

Hafa samband

Ekki hika við að hafa samband við okkur. Við leggjum metnað okkar í að veita framúrskarandi þjónustu og bjóðum aðeins hágæða vöru sem við treystum og vitum að skilar auknum aflaverðmætum.

    Um Kælingu

    Kæling ehf. er meðal leiðandi fyrirtækja á sviði kæli-, frysti- og ískrapakerfa, einkum fyrir sjávarútveg og matvælaiðnað. Fyrirtækið framleiðir meðal annars krapavélar, sjókæla og kælikerfi fyrir fiskiskip. Kerfin hafa náð fótfestu bæði hér á landi og erlendis enda varðveita þau gæði og ferskleika hráefnisins við vinnslu þess og geymslu í skipunum.

    Category
    Shopping Basket