- 565-7918
- info@cooling.is
- Mán - Fös: 8:00 - 17:00
KI-5TF er skelísvél með 5tonna framleiðslugetu á sólarhring með bestu orkunýtingu sem völ er á. Allt að 28% minni raforkunotkun við framleiðslu á hverju tonni af skelís í samanburði við aðrar vélar. Þessi vél er minni að stærð en með sömu afköst á við umfangsmeiri vélar. Vandaðar og áreiðanlegar skelísvélar sem standast álagið og kröfur um hagkvæmari rekstur.
Mögulegt er að velja hvort skelísvélin kemur með:
Skelísvélar frá Kælingu eru fullkomnar fyrir fiskvinnslu hversskonar, íssölufyrirtæki, kjötvinnslur og önnur fyrirtæki sem vilja nýta sér skelís til kælingar.
KI-5TF er skelísvél með 5tonna framleiðslugetu á sólarhring með bestu orkunýtingu sem völ er á. Allt að 28% minni raforkunotkun við framleiðslu á hverju tonni af skelís í samanburði við aðrar vélar. Þessi vél er minni að stærð en með sömu afköst á við umfangsmeiri vélar. Vandaðar og áreiðanlegar skelísvélar sem standast álagið og kröfur um hagkvæmari rekstur.
Mögulegt er að velja hvort skelísvélin kemur með:
Framleiðslugeta á skelís: | 5 tonn /24 klst. |
Þykkt á ísflögum: | 1,8 – 2,2mm. |
Hitastig á ísflögum: | -5° |
Stærð á skelísgeymslu: | Valkvætt |
Orka: | 3 x 400V – 50/60Hz |
Orkuþörf: | 75kWH pr. tonn |
Frystigeta: | 37.7kW |
Orkuþörf í keyrslu: | 18,75kW |
Utanmál í mm LxBxH: | 1950 x 1580 x 1480 mm |
Þyngd: | 1.000 – 1.300* |
Kælimiðill: | 448A/449A |
Við við afkastamælingu: | +25°lofthiti og +18° vatnshiti |
Kæling á skelísvél: | Vatnskæling/Sjókæling/Loftkæling |
* Stærð fer eftir kæliaðferð á vél
**Þyngd fer eftir kæliaðferð á vél
Við fullyrðum að skelísvélar frá Kælingu séu með hagkvæmustu raforkunotkun í hlutfalli við afköst. Skelísvélarnar frysta vatn hraðar en aðrar vélar vegna einstakrar og einkaleyfisvarinni tækni sem bætir hitaleiðni í eiminum. Eimirinn kælir tromluna þar sem vatnið frýs og ísinn skafinn af hraðar en öðrum vélum.
Vélarnar frá okkur þurfa minna ragmagn til að búa til sama magn af skelís í samanburði við aðrar vélar. Þetta er best skýrt með dæmi.
Algengt er að aðrar vatnskældar skelísvélar þurfi 105 kWH til að búa til hvert tonn af skelís. Vélarnar frá Kæling þurfa einungis 75 kWH til að búa til hvert tonn af skelís. Orkusparnaðurinn er ríflega 28%.
Ef við tökum dæmi um aðila sem þarf að framleiða 20 tonn á dag og miðum við 225 starfsdaga yfir árið og miðum við vildarkjör hjá Orku Náttúrunnar skv. verðskrá 22. mars 2024. Skelísvélar frá samkeppnisaðilum hafa sýnt þörf á 105kWH til að framleiða hvert tonn af skelís en vélar frá Kælingu þurfa 75kWH til að framleiða sama magn.
Þá getur dæmið litið svona út (105kWH – 75kWH) x 20 x 225 x 7,97 kr. = 1.075.950 kr.m/vsk. sem sparast í raforkunotkun á hverju ári.
Með þeirri einstöku kælitækni sem skelísvélarnar okkar búa yfir er hægta vera með minni kælivél til að búa til ísinn með sömu getu samanborið við aðrar skelísvélar. Vélarnar henta því afar vel á þeim stöðum þar sem pláss er lítið eða mikilvægt að nýta hvern fermeter eins vel og hægt er.
Við leggjum metnað okkar í að bjóða vandaðan og áreiðanlegan búnað. Við veljum íhluti af kostgæfni og nýtum búnað frá þekktum heimsþekktum aðilum. Í skelísvélum okkar eru yfir 80% af íhlutum frá þekktum alþjóðlegum vörumerkjum líkt og Bitzer, GEA Bock, Danfoss, Schneider o.fl. Einnig er notaður búnaður frá minni aðilum sem standast tilgerðar kröfur. Viðskiptavinir okkar geta því verið vissir um að þeir fái vandaðan og áreiðanlegan búnað með bestu mögulegu afköstum.
Reynslan hefur sýnt að á 12 ára tímabili hafa ekki komið upp bilanir í þjöppum, þenslulokum, eimi eða eimsvala.
Við eigum algengar stærðir af skelísvélum gjarnan á lager en afgreiðum sérpantanir með skjótum hætti. Afgreiðslutími á sérpöntunum getur verið frá 3 til 6 vikum.
Ekki hika við að hafa samband við okkur. Við leggjum metnað okkar í að veita framúrskarandi þjónustu og bjóðum aðeins hágæða vöru sem við treystum og vitum að skilar auknum aflaverðmætum.
Við eigum margar stærðir og gerðir af skelísvélum sem henta þörfum hvers og eins.
Kæling ehf. er leiðandi fyrirtæki á sviði kælilausna fyrir sjávarútveg. Við vinnum stöðugt að því markmiði að viðskiptavinir okkar geti hámarkað aflaverðmæti með réttri kælingu á öllum stigum. Kælilausnir frá Kælingu hafa náð fótfestu bæði hér á landi og erlendis enda hafa þau staðið fyrir gæði, áreiðanleika, afköst, endingu og góða þjónustu.