- 565-7918
- info@cooling.is
- Mán - Fös: 8:00 - 17:00
K-40PR er öflugasta krapavélin okkar og getur framleitt allt að 12.677 l/klst af 10% ískrapa Þetta er því algjör vinnuþjarkur sem skilar sínu fljótt og vel.
Krapavélar framleiða krapa úr sjó, sem er notaður til kælingar á afla þegar búið er að gera að honum. Krapa er dælt jafnt og þétt í kör eins og lagt er í þau.
K-40PR er Ískrapavél með forkæli í rekkaútfærslu og er öflugasta ískrapavélin okkar. Vélin getur framleitt allt að 3.324 l/klst af krapa sem er 45% og hentar fyrir stærri fiskveiðiskip.Þegar þú þarft hámarksafköst og virkilega mikinn krapa, þá er KR-40P vélin sú sem við mælum helst með. Enda hefur hún margsannað gildi sitt.
Rétt meðferð og kæling á afla frá veiðum til afhendingar er lykilinn að því að hámarka aflaverðmæti. Kæling ehf. sérhæfir sig í kælingu afla frá því að hann er veiddur og þar til hann er fullunninn í landi.
Ískrapi er ein besta kælileið fyrir afla sem er í boði. Ískrapi umleikur allan aflann og tryggir þannig jafnari og betri kælingu t.d. í samanburði við hefðbundinn ís. Flekkir á roði vegna ójafnrar kælingar heyra sögunni til. Auðvelt að dæla ískrapanum þar sem best er nýta hann í ferlinu hvort sem það er á sjó eða í landi.
Vinsældur ískrapa fara ört vaxandi bæði á sjó og í landi. Ískrapi hentar afar vel fyrir allan afla úr sjó og einnig önnur matvæli. Þykkni ískrapa getur verið misjafnt frá 15% í 40% ísþykkni á móti sjó. Þunnur ís 15-20% er notaður við vinnslu en þykkari upp í 40% þegar ísa á afla niður í kör.
K-40PR er öflugasta krapavélin okkar og getur framleitt allt að 12.677 l/klst af 10% ískrapa. Vélin er búin forkæli sem tryggir jöfn afköst við allt að 20° sjóhita. Saltinnihald þarf að vera 2,6% NaCI að lágmarki. Ef auka þarf saltinnihald er hægt að nýta saltpækilkerfi. Sjónotkun við 15°er allt að 8.000 lítrar á klukkustund og sjósíun 30 míkron.
Ísframleiðslugeta við 0° sjóhita: | 37.847 l/klst. af 10% ís og 1.440 l/klst. af 40% ís |
Forkælir: | Forkælir heldur uppi jöfnum afköstum ískrapavélarinnar við allt að 15° sjóhita |
Kæliafköst ískrapa við 0° sjóhita: | 129.310 kcal/klst. |
Lágmarks saltinnihald: | 2,6 % NaCl |
Orkuþörf í keyrslu: | 122 Kw |
Utanmál í mm LxBxH: | 2000x1600x2250 |
Þyngd: | 1.490 kg |
Kælimiðill: | 404A / 449A |
Sjósíun: | 30 my |
Sjónotkun við 15 °C: | 5.500 l/klst. |
Ískrapavélar af þessari stærð taka talsvert pláss en eru samsettar úr sjálfstæðum einingum. Sveigjanleiki í uppsetningu er því mjög mikill þannig að ískrapavélum er hægt að koma fyrir með hagkvæmum hætti. Stjórnborð fyrir ískrapavélar eru tölvustýrð og með snertiskjá. Tengja má mörg stjórnborð við hverja ískrapavél. Algengt er að vera með stjórntölvu í brú og aðra á vinnsludekki. Lagnir eru leiddar frá ískrapavél á þann stað eða staði þar sem nýta þarf ískrapann
Fyrstu ískrapavélarnar frá Kælingu voru teknar í notkun árið 2005 og eru allar þær vélar sem Kæling ehf. þjónustar ennþá í notkun. Með reglubundnu eftirliti og réttu viðhaldi má reikna með endingu í 25 ár eða jafnvel lengur.
Kæling ehf. er leiðandi fyrirtæki á sviði kælilausna fyrir sjávarútveg. Við vinnum stöðugt að því markmiði að viðskiptavinir okkar geti hámarkað aflaverðmæti með réttri kælingu á öllum stigum. Kælilausnir frá Kælingu hafa náð fótfestu bæði hér á landi og erlendis enda hafa þau staðið fyrir gæði, áreiðanleika, afköst, endingu og góða þjónustu.
Ekki hika við að hafa samband við okkur. Við leggjum metnað okkar í að veita framúrskarandi þjónustu og bjóðum aðeins hágæða vöru sem við treystum og vitum að skilar auknum aflaverðmætum.
Við eigum margar tegundir af ískrapavélum sem henta öllum stærðum fiskiskipa.