Hydra fjölvirkt kælikerfi

Nýr búnaður sem umbreytir eldri kælikerfum í umhverfisvænar lausnir.

Kæling býður nú Hydru sem er fjölvirkt kælikerfi og hannað til tengjast eldri kælikerfum og minnka eldri óumhverfisvæna kælimiðla niður um allt að 90% og þarf mun minni orku til að skila sambærilegum kæliafköstum.

Hydra fjölvirkt kælikerfi

Nýr búnaður sem umbreytir eldri kælikerfum í umhverfisvænar lausnir.

Kæling býður nú Hydru sem er fjölvirkt kælikerfi og hannað til tengjast eldri kælikerfum og minnka eldri óumhverfisvæna kælimiðla niður um allt að 90% og þarf mun minni orku til að skila sömu kæliafköstum.

Óumhverfsivænum kælimiðlum líkt og Freon eru skornir niður og haldið á mjög afmörkuðum hluta kælikerfisins. Freonið er eingöngu í kjarna kælikerfisins og kælingin flutt yfir í umhverfisvæna kælimiðla líkt og glýcol með varmaskiptitækni. Glýcolinu er það efni sem streymi um rör og kælispírala á þá staði sem eiginleg kæling fer fram.

Hydran í hnotskurn

Einföld og fljótleg leið til að gera eldri kerfi umhverfisvæn og hagkvæmari í rekstri.

  • Minnkar notkun á óumhverfisvænum kælimiðlum um allt að 90%
  • Kælir betur
  • Notar 30% minni orku
  • Margfallt minni rekstraráhætta
  • Stuttur uppsetningartími
  • Auðvelt að koma fyrir
  • Eykur nýtingu á eldri fjárfestingu í kælikerfum
  • Hagkvæm fjárfesting sem skilar sér hratt
Framleiðslugeta á skelís:   8 tonn /24 klst.
Þykkt á ísflögum:   1,8 – 2,2mm.
Hitastig á ísflögum:  -5°
Stærð á skelísgeymslu:  Valkvætt
Orka:  3 x 400V – 50/60Hz
Orkuþörf:   75kWH pr. tonn
Frystigeta:   49,8kW
Orkuþörf í keyrslu:   31,25kW
Utanmál í mm LxBxH:  3000 x 2150 x 2050 mm*
Þyngd:  2.000*
Kælimiðill:   R404A
Við við afkastamælingu:   +30°lofthiti og +20° vatnshiti
Kæling á skelísvél:   Vatnskæling/Sjókæling/Loftkæling

* Stærð fer eftir kæliaðferð á vél
**Þyngd fer eftir kæliaðferð á vél

Hydran getur tengst öllum eldri kælikerfum frá Kælingu og mörgum kerfum frá öðrum framleiðendum.

Freon minnkað um allt að 90%

Freonið er eingöngu í kjarna kælikerfisins og kælingin flutt yfir í umhverfisvæna kælimiðla líkt og glýcol með varmaskiptitækni. Glýcolinu er það efni sem streymi um rör og kælispírala á þá staði sem eiginleg kæling fer fram.

 

Betri kæling með allt að 30% minni orku

Hydran tryggir betri kælingu með allt að 30% minni orku og áður auk þess sem kælingin verður betri t.d. á kælispírölum þar sem ísmyndun er mun minni.

 

Hætta á leka í lágmarki

Hætta á tjóni vegna leka er lágmörkuð. Hætta á tjóni vegna Freon leka er á mjög afmörkuðu svæði og með vöktun er hægt að grípa strax inn í og koma í veg fyrir tjón. Komi upp glýcol leki þá er kostnaður við slíkan leka mun minni auk þess sem glýcolið getur ekki valdið skaða t.d. með því að skemma afla þar sem vottað matvæla glýcol er á um 90% af kerfinu.

 

Uppsetning tekur stuttan tíma

Hydra er hönnuð með það fyrir augum að uppsetning taki stuttan tíma. Öllu er haganlega komið fyrir þannig að Hydra taki lítið pláss og því auðvelt að koma henni fyrir. Lausnin er að stærstum hluta stöðluð og einungis lítill hluti hennar sem þarf að aðlaga að hverju skipi eða stað. Algengur tími við umskipti er 2 vikur.

 

Aukin nýting og sparnaður eldri fjárfestinga

Í stað þess að skipta alfarið um kerfi þá eru eldri fjárfestingar nýttar að stórum hluta á sama tíma og þær eru gerðar mun hagkvæmari og umhverfisvænni.

 

Hydra getur verið fljót að borga sig upp

Með því að velja Hydru lausn Kælingar er ekki eingöngu tekið mikilvæg skref í umhverfismálum og rekstraráhætta sem fylgir freon kerfum er minnkuð verulega. En fyrst og fremst er felst rekstrarlegur ávinningur í mun minni orkunotkun. Algent er að orkunotkun við samsvarandi kæliafköst minnki um 50%.

 

Einstök leið til að hámarka nýtingu eldri fjárfestinga, minnka rekstraráhættu og draga úr rekstrarkostnaði.

 

Dæmi um notkun Hydru

  • Lestakælikerfi með kæliblásurum
  • Lestakælikerfi með kælispírölum

 

Fyrir lestakælingar með blásurum eða kælispírölum

Hvort sem notast er við kæliblásara eða kælispírala í lestum þá hentar Hydran afar vel við þessar aðferðir. Það skiptir ekki máli hvaða aðferð notuð er við lestarkælingu, Hydran gjörbreytt rekstri eldri kerfa.

 

Hafa samband

Hafðu samband og kælisérfræðingar okkar finna hentugustu kælilausnina fyrir þína starfsemi.

    Um Kælingu

    Kæling ehf. er leiðandi fyrirtæki á sviði kælilausna fyrir sjávarútveg. Við vinnum stöðugt að því markmiði að viðskiptavinir okkar geti hámarkað aflaverðmæti með réttri kælingu á öllum stigum. Kælilausnir frá Kælingu hafa náð fótfestu bæði hér á landi og erlendis enda hafa þau staðið fyrir gæði, áreiðanleika, afköst, endingu og góða þjónustu.

    Shopping Basket