BS-5000 saltpækilkerfi

BS-5000 Saltpækilkerfið getur blandað allt að 5.000 lítrum á klst. af 3% saltblöndu. Orkuþörfin eru 3kw @400V/50Hz

 

Saltpækilkerfi eða Brine system eru notuð til þess að búa til saltblöndu úr ferskvatni, eða til þess að auka saltstyrk á sjó sem þegar er fyrir hendi. Yfirleitt er verið að ná upp saltinnihaldi í vatni eða sjó til að nota til kælinga með ískrapavélum. En ískrapavélar verða að taka inn vatn eða sjó sem er með saltinnhald að lágmarki frá 2,5%. Algengt er að sjór sé með um 3% saltinnihaldi.

Hvernig virkar saltpækilkerfi

Í upphafi er saltpækill er búin til með því að taka gróft salt og leysa það upp í vatni, úr verður sterkur saltpækill sem er um 26%, saltpæklinum er því næst blandað við ferskvatn til þess að blanda 3% saltupplausn. Einnig má auka saltinnihald upp í allt að 5% bæði á vatni eða sjó og þar með er hægt að ná   eða blandað saman við sjó og þá má ná kulda á ískrapa niður í allt að -5°. Saltpækilkerfi þarf að tengja við vatnsleiðslu eða geta dælt sjó óhindrað inn á kerfið. Í gegnum stjórnbúnað er saltinnihaldi blöndunar stjórnað og alfarið sjálfvirkt eftir það fyrir utan að hella þarf salti í saltkarið.

Áfylling

Yfirleitt þarf að fylla á saltkarið einu sinni á sólarhring. Mögulegt er að fá lyftubúnað sem lyftir allt að 500kg. saltsekkjum yfir karið sem auðveldar áfyllingu.

BS-5000 Saltpækilkerfi í hnotskurn

BS-5000 Saltpækilkerfið getur blandað allt að 5.000 lítrum á klst. af 3% saltblöndu. Orkuþörfin eru 3kw @400V/50Hz

Hönnun og hreinlæti:

BS-5000 saltpækilkerfið er hannað samkvæmt EN1672-2:1997 staðli fyrir vélbúnað í matvælavinnslur. Allt efni sem notað er í búnaðinn er úr stáli og öðru efni sem samþykkt er til notkunar í matvælavinnslu. Allt er gert til að auðveld þrif og tryggja hreinlæti. Allur rafbúnaður er vel rakaþéttur og þolir þrif með sápu.

Tæknilisti BS-5000

Blöndunargeta: 5.000 l/klst.
Stærð á salttanki: 1.000 lítrar
Stærð á saltpækilsttánki: 330 lítrar
Orkunotkun 380 V / 440 V   50/60 Hz: 3 kW max
Utanmál í mm (LxBxH): 2000x1400x1600
Þyngd: 220 kg
Efni: Ryðfrítt stál og plast fyrir matvælaframleiðslu

Hafa samband

Ekki hika við að hafa samband við okkur. Við leggjum metnað okkar í að veita framúrskarandi þjónustu og bjóðum aðeins hágæða vöru sem við treystum og vitum að skilar auknum aflaverðmætum. Við eigum margar tegundir af sjókælum sem henta öllum stærðum fiskiskipa.

    Um Kælingu

    Kæling ehf. er leiðandi fyrirtæki á sviði kælilausna fyrir sjávarútveg. Við vinnum stöðugt að því markmiði að viðskiptavinir okkar geti hámarkað aflaverðmæti með réttri kælingu á öllum stigum. Kælilausnir frá Kælingu hafa náð fótfestu bæði hér á landi og erlendis enda hafa þau staðið fyrir gæði, áreiðanleika, afköst, endingu og góða þjónustu.
    Category
    Shopping Basket