Kælilausnir fyrir framleiðslufyrirtæki
Sérhannaðar kælilausnir fyrir framleiðslufyrirtæki
Kæling starfar með fjölda framleiðslufyrirtækja við hönnun uppsetningu, eftirlit og viðhald sérhæfðra kælilausna fyrir hvert og eitt fyrirtæki.
Helsti búnaður frá Kælingu fyrir framleiðslufyrirtæki
Kæliklefar
Kæligeymslur
Loftkæling
Vatnskælar
Fullkomin kæling á öllum stigum
Hitastig við meðferð og vinnslu matvæla er afar mikilvægt til að varðveita ferskleika, gæði og heilbrigði matvæla. Kæling býður lausnir fyrir alla vinnslu þannig að lofthiti sé eins og best verður á kosið á öllum stigum.
Niðurkæling eins og hún á að vera
Kröfur og aðferðir við kælingu matvæla getur verið mjög misjöfn eftir mætvælum.
Kæling býður sérsniðnar lausnir að þörfum hvers og eins þar sem gætt er að hámarks orkunýtingu og öruggra kæliaðferða sem tryggja gæði matvælana.
Afurðir geymdar við hárrétt hitastig
Það getur verið af mikilvægt að geta stýrt og verið með fullkomna stjórn á hitastigi sem afurðir eru unnar og eða geymdar við.
Kælingu býður heildarlausnir þar sem eitt eða fleiri kælirými eru með rétta hitastigið fyrir hvert stig vinnslunnar.
Hafðu samband og fáðu aðstoð sérfræðinga við að setja upp sérhæfða kælilausnir sem henta þinni fiskvinnslu.
Fullnýttu fjárfestinguna
Uppfærsla á eldri kælikerfum fyrir umhverfisvæna kælimiðla.
Minnkaðu freon notkun um allt að 90%
Nú er tækifæri til að uppfæra eldri kælikerfi með því að fara í hybrid lausn sem getur minnkað freon notkun um allt að 90%.
Mörg matvælafyrirtæki standa frammi fyrir ákalli um umhverfisvænni starfsemi, aukna hagræðingu og sparnað í rekstri.
Lengi vel var eini kosturinn að skipta alfarið út Freonkerfunum með mjög miklum tilkostnaði, en nú býður Kæling upp á margfalt ódýrari og einfaldari lausnir. Lausnirnar eru Hybrid F/A eða blendingslausnir þar sem lítill hluti kerfisins er með Freoni þar sem upprunalega kælingin fer fram en hún er flutt yfir í vatnsblandað Ammoníak með kuldaberum.
Ammoníaks blöndunni er dælt um lokaðar hringrásir þar sem kælingar er þörf. Við þetta minnkar Freon magnið sem þarf á hvert kerfi um allt að 90% og um leið verður kerfið öruggara, hagkvæmara og umhverfisvænna.
Ávinningurinn er mikill þar sem hætta á Freonlekum er margfallt minni og þá staðbundin. Sparnaðurinn byrjar strax að skila sér með meiri kæliafköstum og kaup á Freoni líklega úr sögunni næsta áratuginn auk jákvæðra umhverfisáhrifa.
Þegar nota þarf vatn við vinnsluna
Við á Íslandi búum við fáheyrðar aðstæður þegar kemur að gæðum og ferskleika vatns. En það geta verið aðstæður þar sem hitastig á neysluvatni getur sveiflast á milli árstíða og daga. Nokkrar gráður geta haft mjög neikvæð áhrif og því getur verið gott að geta stýrt fullkomlega hitastigi á neysluvatni sem er notað við vinnslu.
Kæling býður upp á vatnskæla með misjafna afkastagetu.
Sérsniðnar kælilausnir fyrir framleiðslufyrirtæki
Aðstæður eru gjarnan mjög ólíkar frá einum stað til annars. Kæling býður því sérsniðnar lausnir sem taka mið af umhverfi og þörfum hvers og eins.
Kæliklefar
Kæling býður allar stærðir og gerðir af kæliklefum sem bæði er hægt að fá í stöðluðum stærðum en einnig sérsniðna sem falla fullkomlega að aðstæðum á hverjum stað.
Við bjóðum einnig allar innréttingar, brautir, hurðir og annan búnað sem nauðsynlegur er til að gera virkni og vinnu við kæliklefa sem besta.
Kæligeymslur
Það skiptir ekki máli hversu stóra eða hversu margskipta kæligeymslu fyrirtæki þurfa. Kæling býður kæligeymslur af ölum stærðum og gerðum. Allt frá geymslum sem eru felldar inn í húsnæði upp í stór sjálfstæð mannvirki.
Nýr stjórnbúnaður
Uppfærsla á eldri kælikerfum sem bæta alla stjórnun og rekstraröryggi
Stuttur viðbragðstími með fjarþjónustu
Kæling hefur þróað af öruggan og nákvæman stjórnbúnað fyrir kælilausnir sem hentar einnig eldri lausnum frá Kælingu.
Allur nýr kælibúnaður frá Kælingu kemur með afar fullkomnum rafeindastýrðum stjórnbúnaði sem passar einnig við eldri búnað.
Nýr stjórnbúnaður opnar fyrir fjarþjónustu. Nú er hægt að greina og vandamál án þjónustuteymi Kælingar þurfi að mæta á staðinn. Afköstum er stýrt með mun nákvæmari hætti og orkunýting mun betri. Nákvæmar greiningar og álagsstýringar bæta rekstraröryggi og endingu búnaðar sem hefur verið rýflega 15 ár hingað til.
Uppfærsla sem getur borgað sig hratt til baka. Nýr stjórnbúnaður býr yfir mun nákvæmari stillingum á hitiastigi og stjórnar opnunum og lokunum með mun nákvæmari hætti en áður hefur þekkst. Þetta þýðir mun nákvæmara hitastig, mikinn raforkusparnað, skráningu upplýsinga um stöðu kerfis og búnað því tengdu, fjarþjónustu og vöktun. Taktu örugg skref í átt að sparnaði með Kælingu.
Hafðu samband og fáðu aðstoð sérfræðinga við að setja upp sérhæfða kælilausnir sem henta ykkar starfsemi.