Kælilausnir fyrir stóreldhús og veitingastaði

Sérhannaðar kælilausnir fyrir stóreldhús og veitingastaði

Kæling býður nútíma kælilausnir fyrir stóreldhús og veitingastaði.  Allt frá hönnun og uppsetningu að viðhaldi og eftirliti.

Helsti búnaður frá Kælingu fyrir matvælafyrirtæki

Kæliklefar

Frystiklefar og kæliklefar í öllum stærðum hönnun uppsetning og þjónusta hjá Kælingu

Kæligeymslur

Kæliklefar af öllum stærðum og gerðum frá Kælingu

Loftkæling

Fullkomin kæling hráefna

Að baki glæsilegra rétta liggja töfrar kokksins og fullkomin kæling hráefna. Þetta þekkjum við og vitum hjá Kælingu og vinnum náið með stóreldhúsum og veitingastöðum að skapa réttu aðstæður til þess að geyma hráefni og rétti sem þarfnast kælingar.

Bak við fullkomin rétt er hárrétt kæling hráefna og töfrar kokksins. Túnfiskur á dökkum leirdisk.

Hafðu samband og fáðu aðstoð sérfræðinga við að setja upp sérhæfða kælilausnir sem henta þinni fiskvinnslu.

Fullnýttu fjárfestinguna

Uppfærsla á eldri kælikerfum fyrir umhverfisvæna kælimiðla.

Minnkaðu freon notkun um allt að 90%

Nú er tækifæri til að uppfæra eldri kælikerfi með því að fara í hybrid lausn sem getur minnkað freon notkun um allt að 90%. 

Mörg matvælafyrirtæki standa frammi fyrir ákalli um umhverfisvænni starfsemi, aukna hagræðingu og sparnað í rekstri.

Lengi vel var eini kosturinn að skipta alfarið út Freonkerfunum með mjög miklum tilkostnaði, en nú býður Kæling upp á margfalt ódýrari og einfaldari lausnir. Lausnirnar eru Hybrid F/A eða blendingslausnir þar sem lítill hluti kerfisins er með Freoni þar sem upprunalega kælingin fer fram en hún er flutt yfir í vatnsblandað Ammoníak með kuldaberum. 

Ammoníaks blöndunni er dælt um lokaðar hringrásir þar sem kælingar er þörf. Við þetta minnkar Freon magnið sem þarf á hvert kerfi um allt að 90% og um leið verður kerfið öruggara, hagkvæmara og umhverfisvænna. 

Ávinningurinn er mikill þar sem hætta á Freonlekum er margfallt minni og þá staðbundin.  Sparnaðurinn byrjar strax að skila sér með meiri kæliafköstum og kaup á Freoni líklega úr sögunni næsta áratuginn auk jákvæðra umhverfisáhrifa. 

Sérsniðnar kælilausnir fyrir stóreldhús og veitingastaði

Aðstæður eru gjarnan mjög ólíkar frá einum stað til annars. Kæling býður því sérsniðnar lausnir sem taka mið af umhverfi og þörfum hvers og eins.

Kæliklefar

Kæling býður allar stærðir og gerðir af kæliklefum sem bæði er hægt að fá í stöðluðum stærðum en einnig sérsniðna sem falla fullkomlega að aðstæðum á hverjum stað.

Við bjóðum einnig allar innréttingar, brautir, hurðir og annan búnað sem nauðsynlegur er til að gera virkni og vinnu við kæliklefa sem besta.

Kæliklefar af öllum stærðum og gerðum frá Kælingu

Kæligeymslur

Það skiptir ekki máli hversu stóra eða hversu margskipta kæligeymslu fyrirtæki þurfa. Kæling býður kæligeymslur af ölum stærðum og gerðum. Allt frá geymslum sem eru felldar inn í húsnæði upp í stór sjálfstæð mannvirki.

Nýr stjórnbúnaður

Uppfærsla á eldri kælikerfum sem bæta alla stjórnun og rekstraröryggi

Stuttur viðbragðstími með fjarþjónustu

Kæling hefur þróað af öruggan og nákvæman stjórnbúnað fyrir kælilausnir sem hentar einnig eldri lausnum frá Kælingu.

Allur nýr kælibúnaður frá Kælingu kemur með afar fullkomnum rafeindastýrðum stjórnbúnaði sem passar einnig við eldri búnað.

Nýr stjórnbúnaður opnar fyrir fjarþjónustu. Nú er hægt að greina og vandamál án þjónustuteymi Kælingar þurfi að mæta á staðinn.  Afköstum er stýrt með mun nákvæmari hætti og orkunýting mun betri. Nákvæmar greiningar og álagsstýringar bæta rekstraröryggi og endingu búnaðar sem hefur verið rýflega 15 ár hingað til.

Uppfærsla sem getur borgað sig hratt til baka. Nýr stjórnbúnaður býr yfir mun nákvæmari stillingum á hitiastigi og stjórnar opnunum og lokunum með mun nákvæmari hætti en áður hefur þekkst. Þetta þýðir mun nákvæmara hitastig, mikinn raforkusparnað, skráningu upplýsinga um stöðu kerfis og búnað því tengdu, fjarþjónustu og vöktun. Taktu örugg skref í átt að sparnaði með Kælingu. 

Hafðu samband og fáðu aðstoð sérfræðinga við að setja upp sérhæfða kælilausnir sem henta ykkar starfsemi.