Sérhæfðar lausnir fyrir fiskeldi
Sérhæfðar alhliða kælilausnir fyrir fiskeldi
Kæling býður sérhæfðar nútíma kælilausnir fyrir fiskeldi sem tryggja fullkomið hitastig frá slátrun til lestunar á flutningstæki.
Blæðing og slátrun við fullkomið hitastig
Meðferð og kæling á eldisfiski þarf að vera hárrétt frá upphafi til enda til þess að tryggja hámarks verðmæti. Með aðstoð sjókæla er hægt að láta fisk blæða út við kjörhitastig sem varðveitir hámarks gæði á þessu stigi.
Niðurkæling fyrir kæligeymslu eða flutning
Að ná fullkomnu hitastigi fyrir afurðir úr fiskeldi er lykilatriði til að tryggja hámarks ferskleika hvort sem um er að ræða kælingu áður en afurðir fara í kæligeymslu eða beint í flutning.
Sérsniðnar nútímalausnir eftir þörfum hvers og eins
Aðstæður eru gjarnan mjög ólíkar frá einum stað til annars. Kæling býður því sérsniðnar lausnir sem taka mið af umhverfi og þörfum hvers og eins.
Sjókælar
Hringrásasjókælar
Ískrapavélar
Skelísvélar
Vatnskælar
Kæliklefar
Gámalausnir
Sjókælar
Kældur sjór er afar hentugur til að tryggja rétt hitastig afla á öllum stigum allt frá því að hann er tekin úr kví og þar til geymslukæling hefst. Sjókælar geta boðið upp á úttöku á miskældum sjó fyrir hvert vinnslustig. Þannig er hægt að vera með fullkomna kælingu á öllum stigum og hámarka gæði afla. Rétt kæling hægir á vexti gerla og minnkar virkni ensíma.
RSW system
Afkastamikil hringrásakerfi sem draga verulega úr orkuþörf.
90%
Allt að 90% sparnaður
Endurnýting á kældum sjó og eða vatni sparar verulega orku.
Nú er tækifæri til að uppfæra eldri kælikerfi með því að fara í Hybrid F/A lausn sem getur minnkað freon notkun um allt að 90%.
Kæling hefur þróað aðferð sem gerir útgerðum kleift að fara í sparneytnar og umhverfisvænar kælilausnir með því að uppfæra eldri kerfi með óumhverfisvænum kælimiðlum líkt og freon.
Lengi vel var eini kosturinn að skipta alfarið út Freonkerfunum með mjög miklum tilkostnaði, en nú býður Kæling upp á margfalt ódýrari og einfaldari lausnir. Lausnirnar eru Hybrid F/A eða blendingslausnir þar sem lítill hluti kerfisins er með Freoni þar sem upprunalega kælingin fer fram en hún er flutt yfir í vatnsblandað Ammoníak með kuldaberum.
Ammoníaks blöndunni er dælt um lokaðar hringrásir þar sem kælingar er þörf. Við þetta minnkar Freon magnið sem þarf á hvert kerfi um allt að 90% og um leið verður kerfið öruggara, hagkvæmara og umhverfisvænna.
Ávinningurinn er mikill þar sem hætta á Freonlekum er margfallt minni og þá staðbundin. Sparnaðurinn byrjar strax að skila sér með meiri kæliafköstum og kaup á Freoni líklega úr sögunni næsta áratuginn auk jákvæðra umhverfisáhrifa.
Hringrásasjókælar
Allir sömu kostir og venjulegir sjókælar með mörg úttök með mis kældum sjó en miklu minni orkunotkun. Kældur sjór sem hefur farið í gegnum einhvern hluta vinnslu og meðhöndlun er síaður og hreinsaður áðu en hann fer aftur inn í kælispírala og þaðan aftur út til notkunar.
Þannig er sjórinn nýttur aftur og aftur og minna haft fyrir að kæla hann miðað við að taka eingöngu ferskan sjó inn á kerfið. Umhverfisvæn leið sem getur borgað sig á skömmum tíma.
Ískrapavélar
Ískrapi er ein besta kælileið fyrir afla sem er í boði. Ískrapi umleikur allan aflann og tryggir þannig jafnari og betri kælingu t.d. í samanburði við hefðbundinn ís. Flekkir á roði vegna ójafnrar kælingar heyra sögunni til. Auðvelt að dæla ískrapanum þar sem best er nýta hann í ferlinu hvort sem það er á sjó eða í landi.
Skelísvélar
Skelís getur verið hentugur til kælinga í mörgum tilfellum. Hjá Kælingu eru í boði vandaðar og áreiðanlegar skelísvélar sem hægt er að fá í mismunandi stærðum og gerðum.
Vatnskælar
Hér á Íslandi höfum við á flestum stöðum nægjanlegt ferskvatn til að vinna með. Það getur hins vegar reynst mjög dýrmætt að geta stýrt af nákvæmni hitastiginu á vatninu. Árstíðabundnar sveiflur í ferskvatni geta haft áhrif á gæði afurða og því mikilvægt að stýra með nákvæmum hætti kjörhitastigi á vatni til vinnslu.
Stjórnun hitastigs í vinnslurýmum
Lofthitastig í þeim rýmum sem afurðirnar fara í gegnum er mikilvægur þáttur í öllu ferlinu. Kæling býður alhliða lausnir frá því að setja upp rýmin og tryggja að rétt hitastig haldist þó að umferð starfsmanna og vinnutækja fari um svæðið.
Kælirými af öllum stærðum og gerðum
Í upphafi er valinn búnaður sem hentar umsvifum á hverjum stað. En á sama tíma er mikilvægt að hanna og velja búnað sem getur stutt við vöxt hjá fyrirtækinu. Með náinni samvinnu afhendum við lausnir sem styðja við markmið fyrirtækja um vöxt og gæði afurða.
Kæliklefar
Frystiklefar
Hurðir
Hraðhurðir
Öryggisbúnaður
Vöktun
Færanlegar lausnir
Þegar þörf er á öflugum búnaði á mörgum stöðum
Kælilausnir í færanlegum gámum
Kæling býður fjölmargar útfærslur á færanlegum lausnum sem m.a. hafa verið notaðar með mjög góðum árangri hjá fiskeldisfyrirtækjum erlendis.
Mögulegt er að fá nánast allan búnað í gámaútfærslum en einnig samsettar lausnir líkt og færanleg ískrapaverksmiðja K-40PX2 sem er ískrapaverksmiðja í 40 feta gám.
Gámalausnirnar eru frábær lausn þar sem þörf er að öflugum kælilausnum á mörgum stöðum en ekki endilega á sama tíma.
Gámalausnir eru einnig frábær lausn þegar ekki er til staðar hentugt húsnæði eða ekkert pláss fyrir kælilausnir. En þá má koma fyrir gám eða gámum á athafnasvæði og tengja við vinnsluhúsnæði.
Að koma fyrir gámalausum á athafnasvæði getur verið mun einfaldari leið og fljótlegri en að koma búnaði fyrir inni í húsnæði.
Hafðu samband og kynntu þér alla kosti og þá möguleika sem eru í boði í gámalausnum frá Kælingu.
Hafðu samband og fáðu aðstoð sérfræðinga við að setja upp sérhæfða kælilausnir sem henta ykkar starfsemi.