- 565-7918
- info@cooling.is
- Mán - Fös: 8:00 - 17:00
Sjókælar frá Kælingu ehf. eru í hæsta gæðaflokki og hannaðir sem hagkvæmur valkostur í nútíma kælitækni til að hámarka aflaverðmæti. Sjókæla má nota á mörum stigum matvælavinnslu, bæði til sjós og lands.
Kældur sjór er afar hentugur til að tryggja rétt hitastig afla á öllum stigum allt frá því að hann kemur um borð og þar til geymslukæling hefst. Sjókælar geta boðið upp á úttöku á miskældum sjó fyrir hvert vinnslustig. Þannig er hægt að vera með fullkomna kælingu á öllum stigum og hámarka gæði afla. Rétt kæling hægir á vexti gerla og minnkar virkni ensíma.
Yfirborðshiti sjávar er gjarnan hærri en það hitastig sjávar sem aflinn kemur úr. Því getur sjór sem dælt er beint frá yfirborði hraðað því að aflinn missi ferskleika sinn. Sjóhiti getur verið mjög breytilegur eftir árstíðum sem hefur áhrif á afkastagetu sjókæla. Tölvustýrðir skynjarar og sérhæfður hugbúnaður hámarka sjóflæði í gegnum sjókæli á hverjum tíma þannig að ávallt er hægt að vinna með hárrétta kælistig á öllum vinnslustigum.
KP-18 sjókælir afkastar allt að 1.000 lítrum á klukkstund af sjó sem er kældur niður í allt að -2°C. Saltinnihald þarf að vera 2,6% NaCI að lágmarki. Ef auka þarf saltinnihald er hægt að nýta saltpækilkerfi. Sjónotkun við 15° er allt að 1.500 lítrar á klukkustund og sjósíun 100 míkron.
Sjókælar frá Kælingu ehf. eru með kælipressu sem drifin er af 3 fasa rafmagni, eimsvala, títanvarmaskipti ásamt tölvustýrðum stýrilokum og stjórnlokum. Stjörntöflu má staðsetja nánast hvar sem er og mögulegt að hafa fleiri en einn stjórnskjá.
Algengt er að velja saman sjókæli og ískrapavél. Nauðsynlegt er að kæla sjó niður í 0° áður en hann fer inn á ískrapavélar til að viðhalda fullum afköstum hennar.
Við hönnun og framleiðslu á sjókælum er ávallt valinn besti mögulegi búnaður og bestu fáanleg efni á hverjum tíma. Sjókælarnir hafa þá sérstöðu að vera framleiddir með títanplötuvarmaskipti sem eykur bæði afköst og endingu verulega. Með reglulegu viðhaldi uppfærslum á sjókælum má reikna með endingu í allt að 25 ár eða jafnvel lengur.
Orkunotkun 3x 230 V / 3x 400V: | 6 kW |
Kæliafköst: | 18 kW |
Kæliafköst 10°C-2°C: | 1.000 l/klst. |
Lágmarks saltinnihald: | 2,6% NaCl |
Utanmál í mm (LxBxH): | 1100x600x600 |
Þyngd: | 205 kg |
Kælimiðill: | 404A/449A |
Sjósíun: | 100 míkron |
Sjónotkun við 15°: | 1.500 l/klst. |
Ekki hika við að hafa samband við okkur. Við leggjum metnað okkar í að veita framúrskarandi þjónustu og bjóðum aðeins hágæða vöru sem við treystum og vitum að skilar auknum aflaverðmætum.
Við eigum margar tegundir af sjókælum sem henta öllum stærðum fiskiskipa.
Kæling ehf. er leiðandi fyrirtæki á sviði kælilausna fyrir sjávarútveg. Við vinnum stöðugt að því markmiði að viðskiptavinir okkar geti hámarkað aflaverðmæti með réttri kælingu á öllum stigum. Kælilausnir frá Kælingu hafa náð fótfestu bæði hér á landi og erlendis enda hafa þau staðið fyrir gæði, áreiðanleika, afköst, endingu og góða þjónustu.