Ferskvatnskælar frá Kælingu Víkurafli eru afrakstur áratuga þróunar og reynslu af notkun sjókæla við mjög krefjandi aðstæður á Íslandsmiðum og víða annars staðar um heiminn. Ferskvatnskælar eru þróaðir með sömu aðferðum og eru í hæsta gæðaflokki og hannaðir fyrir þá sem vilja nýta nútíma kælitækni og hámarka ferskleika afurða með notkun vatns við hárrétt hitastig.
| Spennugjafi: | 3x 230 V / 3x 400V |
| Orkunotkun: | 45 kW |
| Kæliafköst: | 150 kW |
| Kæliafköst: | 129.600 kcal/klst |
| Kæliafköst á vatni úr 10°C í 2°C: | 16.200 l/klst. |
| Stærð (LxBxH): | 2200x700x1700 mm |
| Þyngd: | 786 kg |
| Kælimiðill: | R404A / R449A |
| Vatnssíun: | 100 míkron |
| Vatnsnotkun við kælingu á búnaði við 15° sjávarhita: | 9.000 l/klst. |
Við hönnun og framleiðslu á ferskvatnsælum frá Kælingu Víkurafli er ávallt valinn besti mögulegi búnaður og bestu fáanleg efni á hverjum tíma. Vatnskælarnir frá okkur hafa m.a. þá sérstöðu að vera framleiddir með títanplötuvarmaskipti sem eykur bæði afköst og endingu verulega.
Með reglulegu viðhaldi uppfærslum á ferskvatnskælum má reikna með endingu í allt að 25 ár eða jafnvel lengur.
Algengt er að nota ferskvatnskæla í fiskvinnslum og matvælafyrirtækjum t.d. við skolun og þrif á fiski, kjöti og grænmeti.
Vatnskælar eru fáanlegir í all mörgum stöðluðum útfærslum en einnig sérhannaðir eftir þörfum hvers og eins.
Kælt ferskvatn getur verið afar hentugt þegar kemur að því að halda ferskleika afurða og hreinsa þær. En það er mjög mikilvægt að nota vatn meðéttu hitastigi til að koma í veg fyrir að afurðir hitni og komi af stað óæskilegum ferlum þannig að gæði og ferskleiki byrja að glatast.
Hitastig á ferskvatni í veitukerfum getur verið of heitt til þess að nýta við matvælavinnslu. Það er því mjög mikilvægt að huga að því hitistigi sem kemur beint úr krana og mikilvægt að hafa í huga að árstíðarbundnar sveiflur geta verið á því hitastigi. Með ferskvatnskælum má stýra hitastigi á vatni með nákvæmum hætti.
Hægt er að ferskvatnskæla til þess að kæla vatn niður í 1°C.
Með því að nýta kælt vatn á viðeigandi vinnslustigum haldast afurðir ferskar og eru eins kaldar og hægt er áður en þær eru settar geymslukælingu.
Eftir því sem ferskvatn er kaldara þá aukast afköst ferskvatnskæla sem eru með „max flow“ virkn sem virkar þannig að hugbúnaður kerfisins leitast við að halda stöðugur hitastigi frá kælinum, óháð vatnsflæði . Þess vegna er mikill munur á afkastagetu (flæði) eftir því hvort vatnshiti er 5°C eða 10 °C. Þennan vatnskæli er hægt að fá með „Max flow“ útfærslu.
Ferskvatnskælar geta boðið upp á úttöku á miskældum sjó fyrir hvert vinnslustig. Þannig er hægt að vera með fullkomna kælingu á öllum stigum og hámarka gæði afla. Rétt kæling hægir á vexti gerla og minnkar virkni ensíma.
Þar sem vatnshiti getur verið mjög breytilegur eftir árstíðum er mikilvægt að stýra flæði og hitastigi sjálfvirkt eftir aðstæðum hverju sinni. Þetta er gert með nútíma stjórnkerfi sem sér til þess að tryggja hárrétta kælingu hvernig sem hitastig ferskvatns er.
Stjörntöflu má staðsetja nánast hvar sem er og mögulegt að hafa fleiri en einn stjórnskjá.
Stjórnbúnaður frá Kælingu Víkurafli fyrir vatnskæla býður upp á fjartengingar sem gerir þjónustuteymi okkar mögulegt að tengjast ferskvatnskælum hvar sem þeir eru staddir svo lengi sem það er netsamband. Fjartengingin er nýtt til að kanna stöðu ferskvatnskæla, þjónusta þá og fínstilla ef þess þarf.
Kæling Víkurafl býður ferskvatnskæla og annan kælibúnað til sölu til viðskiptavina um allan heim. Kæling Víkurafl hefur mjög sterka stöðu á íslenskum markaði en okkar helstu útflutningslönd eru m.a. Bandaríkin, Canada, Noregur, Bretland, Færeyjar o.fl. lönd. Við veitum öllum okkar erlendu viðskiptavinum faglega þjónustu, á þeirra starfsstöðvum, um borð í þeirra fiskiskipum og í gegnum fjartengingar svo lengi sem búnaðurinn nær netsambandi.
Það er að ýmsu að hyggja þegar kemur að vali á sjókælum, en þá er mikilvægt að fara í gegnum markvissa þarfagreiningu sem nær m.a. til þess aflamagns sem þarf að vera hægt að kæla á ákveðnu tímabili og þess hitastigs sem sjórinn er við veiðarnar. Þarna geta ólík væðisvæði og árstíðabundnar sveiflur haft talsverð áhrif.
Ekki hika við að hafa samband við okkur. Við leggjum metnað okkar í að veita framúrskarandi þjónustu og bjóðum aðeins hágæða vöru sem við treystum og vitum að skilar auknum aflaverðmætum.
Við eigum margar tegundir af sjókælum sem henta öllum stærðum fiskiskipa.
Kæling Víkurafl ehf.
Stapahraun 6
220 Hafnarfjörður
Iceland
Kennitala: 410605-0900
VSK nr.: 86790