Hámarkaðu aflaverðmæti með réttri kælingu.
Rétt meðferð og kæling á afla frá veiðum til afhendingar er lykilinn að því að hámarka aflaverðmæti. Kæling ehf. sérhæfir sig í kælingu afla frá því að hann er veiddur og þar til hann er fullunninn í landi.
Af hverju að nota ískrapa?
Ískrapi er ein besta kælileið fyrir afla sem er í boði. Ískrapi umleikur allan aflann og tryggir þannig jafnari og betri kælingu t.d. í samanburði við hefðbundinn ís. Flekkir á roði vegna ójafnrar kælingar heyra sögunni til. Auðvelt að dæla ískrapanum þar sem best er nýta hann í ferlinu hvort sem það er á sjó eða í landi.
Ískrapi notaður um borð og í landi
Vinsældir ískrapa fara ört vaxandi bæði á sjó og í landi. Ískrapi hentar afar vel fyrir allan afla úr sjó og einnig önnur matvæli. Þykkni ískrapa getur verið misjafnt frá 15% í 40% ísþykkni á móti sjó. Þunnur ís 15-20% er notaður við vinnslu en þykkari upp í 40% þegar ísa á afla niður í kör.
K-3P ískrapavélin í hnotskurn
K-3P getur framleitt allt að 930 lítra af ískrapa á klukkustund. Vélin er búinn forkæli sem tryggir jöfn afköst við allt að 20°C sjóhita. Saltinnihald þarf að vera 2,6% NaCI að lágmarki. Ef auka þarf saltinnihald er hægt að nýta saltpækilkerfi. Sjónotkun við 15° er allt að 2.500 lítrar á klukkustund og sjósíun 30 míkron.
Fyrirferðalítill búnaður og sveigjanlegur í uppsetningu
Ískrapavélar taka lítið pláss miðað við afköst og eru samsettar úr sjálfstæðum einingum. Sveigjanleiki í uppsetningu er því mjög mikill þannig að ískrapavélum hefur alltaf verið komið fyrir þrátt fyrir takmarkað pláss. Stjórnborð fyrir ískrapavélar eru tölvustýrð og með snertiskjá. Tengja má mörg stjórnborð við hverja ískrapavél. Algengt er að vera með stjórntölvu í brú og aðra á vinnsludekki. Lagnir eru leiddar frá ískrapavél á þann stað eða staði þar sem nýta þarf ískrapann
Ending og áreiðanleiki
Fyrstu ískrapavélarnar frá Kælingu voru teknar í notkun árið 2005 og eru allar þær vélar sem Kæling ehf. þjónustar ennþá í notkun. Með reglubundnu eftirliti og réttu viðhaldi má reikna með endingu í 25 ár eða jafnvel lengur.
Krapavélar losa þig undan því að halda til sjós með kör full af ís. Enn fremur þá losnarðu við að moka ís milli kara, sem felur í mikinn tímasparnað.
K-3F krapavél með forkæli skilar meiri aflaverðmætum
Góð krapavél skilar auknum verðmætum, á því leikur enginn vafi. Krapinn ver aflann betur en hefðbundinn ís, þar sem krapinn umlykur allan afla í karinu. Þannig eru hvergi nokkur loftgöt.
Ísframleiðslugeta við 0° sjóhita: |
930 l/klst af 10% ís og 290 l/klst af 40% ís |
Forkælir: |
Forkælir heldur uppi jöfnum afköstum ísvélarinnar í allt að 15 °C sjóhita. |
Kæliafköst ískrapa við 0°sjóhita: |
9.700 kcal/klst. |
Lágmarks saltinnihald: |
2,6% NaCI |
Orkuþörf í keyrslu: |
11 Kw |
Utanmál í mm LxWxH: |
1.420x600x670mm |
Þyngd: |
340 kg |
Kælimiðill: |
404A/449A |
Sjósíun: |
30my |
Sjónotkun við 15 °C: |
2.500 l/klst |
Hafa samband
Ekki hika við að hafa samband við okkur. Við leggjum metnað okkar í að veita framúrskarandi þjónustu og bjóðum aðeins hágæða vöru sem við treystum og vitum að skilar auknum aflaverðmætum.
Við eigum margar tegundir af
ískrapavélum sem henta öllum stærðum fiskiskipa og fiskvinnslum í landi.
Um Kælingu
Kæling ehf. er leiðandi fyrirtæki á sviði kælilausna fyrir sjávarútveg. Við vinnum stöðugt að því markmiði að viðskiptavinir okkar geti hámarkað aflaverðmæti með réttri kælingu á öllum stigum. Kælilausnir frá Kælingu hafa náð fótfestu bæði hér á landi og erlendis enda hafa þau staðið fyrir gæði, áreiðanleika, afköst, endingu og góða þjónustu.