K-20PA ískrapavél með forkæli og loftkælingu

K-20PA er loftkæld ískrapavél og er alltaf notuð í landi. Loftkælingin er notuð í stað vatns- eða sjókælingar. Eina vatnið eða sjórinn sem er notað er fyrir ískrapaframleiðslu. Hentar vel þar sem vatn og eða sjór er af skornum skammti eða kostar mikið. Saltinnihald þarf að vera 2,6% NaCI að lágmarki. Ef auka þarf saltinnihald er hægt að nýta saltpækilkerfi.

K-20PA getur framleitt allt að 6.339 lítra af ískrapa á klukkustund. Vélin er búinn forkæli sem tryggir jöfn afköst við allt að 15°C sjóhita. Sjónotkun við 15° er allt að 6.500 lítrar á klukkustund og sjósíun 30 míkron.

K-20PA loftkæld ískrapavél með forkæli - hnappur á PDF skjal.

K-20PA er loftkæld ískrapavél með forkæli

Ísframleiðsla á 24 klst. miðað við 0° sjóhita er 18.923 kg.

Notkun ískrapa til kælingar á afla er talin ein allra best leiðin til að ná sem bestri og jafnastri kælingu og þar með hámörkun aflaverðmæta.

Ískrapavélar frá Kælingu Víkurafli eru afrakstur áratuga þróunar og reynslu af notkun þeirra við mjög krefjandi aðstæður á Íslandsmiðum og víða um heim. Ískrapavélar eru mikið notaðar um borð í fiskiskipum en einnig af vinnslum í landi.

Fullkomin kæling frá upphafi til enda

Ískrapi gegnir lykilhlutverki við að tryggja fullkomna kælingu

Til að hámarka aflaverðmæti gegnir rétt kæling og meðferð á aflanum lykil hlutverki. Ískrapi er talin besta leiðin til að ná jafnri og réttri kælingu á afla. Ískrapi hefur þann eiginleika að smjúga um allt og nær þannig að umliggja hvern fisk sem tryggir jafnari og betri kælingu. Ískrapi vinnur gegn blettum í roði og merkjum um ójafna kælingu.

K-20PA ískrapavél í hnotskurn

K-20A getur framleitt allt að 6.339 lítra af 10% ískrapa á klukkustund og allt að 1.858 lítra af 40% ískrapa á klukkustund miðað við 0°sjóhita inn á ískrapavélina. Ísframleiðsla á 24 klst. miðað við 0° sjóhita er 18.923 kg.

Þessi ískrapavél er búin forkæli sem tryggir jöfn afköst við allt að 15°C sjóhita.

Saltinnihald þarf að vera 2,6% NaCI að lágmarki. Ef auka þarf saltinnihald er hægt að nýta saltpækilkerfi. Þessi ískrapavél er loftkæld.

 
Spennugjafi: 3x 230 V / 3x 400 V
Orkunotkun: 50 kW
Kæliafköst í kW: 75 kW
Kæliafköst í kcal/klst: 64.655 kcal/klst
Ískrapaframleiðslugeta 10% ís við 0°C sjóhita: 6.339 l/klst.
Ískrapaframleiðslugeta 40% ís við 0°C sjóhita: 1.858 l/klst.
Ísframleiðslugeta á 24 klst. við 0°C sjóhita: 18.923 kg.
Forkælir tryggir jöfn afköst við sjávarhita upp að: 15°C
Lágmarks saltinnihald: 2,6% NaCl
Stærð (LxBxH): 2000x1300x1850 mm
Þyngd: 1.850 kg
Kælimiðill: R404A / R449A
Sjósíun: 30 míkron
Kælivél er loftkæld: N/A

Af hverju að nota ískrapa

Ein besta leiðin til að kæla fisk er með ískrapa

Ískrapi er ein besta kælileið fyrir sjávarafla og sjávarfang sem er í boði. Ískrapi umleikur allan aflann og tryggir þannig jafnari og betri kælingu t.d. í samanburði við hefðbundinn ís. Flekkir á roði vegna ójafnrar kælingar heyra sögunni til. Auðvelt að dæla ískrapanum þar sem best er nýta hann í ferlinu hvort sem það er á sjó eða í landi.

Þykkni ískrapa er stillanlegt

VinsældIr ískrapa fara ört vaxandi bæði á sjó og í landi. Ískrapi hentar afar vel fyrir allan afla úr sjó og einnig önnur matvæli. Þykkni ískrapa getur verið misjafnt frá 10% upp í 40% ísþykkni á móti sjó. Þunnur ískrapi 10-20% er notaður við vinnslu en þykkari upp í 40% þegar ísa á afla niður í kör.

Fyrir vinnslur í landi

Þessi ískrapavél er loftkæld og ætluð til notkunar í landi.

Vinsældir ískrapa fara ört vaxandi enda talin ein allra besta leiðin til að tryggja jafna og góð kælingu á afla, sjávarafurðum og ýmsum matvælum.

Þykkni ískrapa getur verið misjafnt frá 10% í 40% ísþykkni á móti sjó. Þunnur ís 10-20% er notaður við vinnslu en þykkari upp í 40% þegar ísa á afla niður í kör.

Ískrapavélar eru talsvert hjá fiskvinnslum og í auknum mæli hjá matvælafyrirtækjum. Ískrapavélar eru fáanlegar stöðluðum útfærslum en einnig sérhannaðar eftir þörfum hvers og eins. 

Fyrirferðalítill búnaður

Sveigjanleiki í uppsetningu

Ískrapavélar taka lítið pláss miðað við afköst og eru samsettar úr sjálfstæðum einingum. Sveigjanleiki í uppsetningu er því mjög mikill þannig að ískrapavélum hefur alltaf verið komið fyrir þrátt fyrir takmarkað pláss.

Stjórnborð fyrir ískrapavélar eru tölvustýrð og með snertiskjá. Tengja má mörg stjórnborð við hverja ískrapavél. Algengt er að vera með stjórntölvu í stjórnrými og þar sem ískrapinn er notaður.

Ending og áreiðanleiki

Reikna má með endingu í allt að 25 ár

Við hönnun og framleiðslu á ískrapavélum frá Kælingu Víkurafli er ávallt valinn besti mögulegi búnaður og bestu fáanleg efni á hverjum tíma. Ískrapavélarnar frá okkur hafa m.a. þá sérstöðu að vera framleiddir með títanplötuvarmaskipti sem eykur bæði afköst og endingu verulega.

Með reglulegu viðhaldi og uppfærslum á sjókælum má reikna með endingu í allt að 25 ár eða jafnvel lengur.

Ískrapi er afar hentugur til að tryggja hraða og góða kælingu

Ískrapi er afar hentugur til að tryggja hraða og jafna kælingu á afla og sjávarfangi um leið og það er búið að vinna að aflanum og áður en hann fer í geymslukælingu.

Ískrapi sem geymslukæling

Þegar afla hefur verið komið fyrir t.a.m. í fiskikörum þá er mjög áhrifaríkt að fylla í körin með ískrapa sem umliggur allan aflan í karinu og tryggir jafna og góða kælingu alla leið í land.

Til að tryggja enn betri kælingu og endingu á ískrapanum þá er gott að dreyfa hefðbundnum skelís yfir til að halda kuldanum betur í fiskikörum.

Ískrapavélar geta framleitt ískrapa niður í allt að -2° C

Algengast er að vinna með ískrapa á bilinu 0° til -2° C.

Nákvæmur nútíma stjórnbúnaður með fjartengingu

Þar sem aðstæður geta verið breytilegar t.d. eftir árstíðum er mikilvægt að stýra flæði og hitastigi ískrapa sjálfvirkt eftir aðstæðum hverju sinni. Þetta er gert með nútíma stjórnkerfi sem sér til þess að tryggja hárrétta kælingu hvernig sem aðstæður eru.

Stjörntöflu má staðsetja nánast hvar sem er og mögulegt að hafa fleiri en einn stjórnskjá.

Stýritöflur frá Kæling Víkurafl

Fjarþjónusta í boði

Stjórnbúnaður frá Kælingu Víkurafli fyrir ískrapavélar býður upp á fjartengingar sem gerir þjónustuteymi okkar mögulegt að tengjast ískrapavélum hvar sem þær eru settar upp svo lengi sem það er netsamband. Fjartengingin er nýtt til að kanna stöðu ískrapavélar, þjónusta þær og fínstilla ef þess þarf.

Ískrapavélar og sjókælar vinna vel saman

Ískrapavélar án sambyggðra forkæla líkt og þessi eru gjarnan notaðar með sjókælum til þess að bæta orkunýtingu og afköst ískrapavéla.

Algeng uppsetning er að láta sjókæl kæla niður í 0°C áður en sjó er dælt inn á ískrapavélar. Þannig er hægt að framleiða meiri ískrapa, hraðar og með mun minni orkunotkun í samanburði við að taka sjó beint inn á ískrapavélar.

Mismunandi kælivélakælingar

Mögulegt er að velja á milli ólíkra kælivélakælinga í ískrapavélum eftir því hvar þær eru notaðar og hvaða kæliaðferð er hentugust í hverju tilfelli en kæliaðferðir sem eru í boði eru:

  • Vatnskæling
  • Sjókæling
  • Loftkæling

Um borð í fiskiskipum er nær eingöngu notuð sjókæling til kælivélakælinga nema þegar fiskiskip eru gerð út á ósöltuð vötn. Fyrir ískrapavélar sem eru í landi þá er mögulegt að velja á milli vatnskælingar eða loftkælingar fyrir kælivélar. Loftkælingar eru eingöngu notaðar í landi.

Fyrir mikla ískrapanotkun á stuttum tíma

Ískrapatankar

Ískrapatankar eru mjög góð lausn við þær aðstæður þar sem nota þarf mikinn ískrapa á stuttum tíma. Ískrapi er framleiddur í ískrapavélum og dælt í ískrapatanka þar sem ískrapanum er haldið við það hitastig sem á að nota.

Þegar ískrapa er dælt út af tönkunum þá sér sjálfvirkur stýribúnaður til þess að ískrapavél framleiði ískrapa og dæli inn á tankinn eftir þörfum.

Nánar >>

Ískrapatankar tankar fyrir ískrapa frá Kælingu Ístankar

Sala og þjónusta á ískrapavélum um allan heim

Kæling Víkurafl býður ískrapavélar og annan kælibúnað til sölu til viðskiptavina um allan heim. Kæling Víkurafl hefur mjög sterka stöðu á íslenskum markaði þar sem við höfum starfað í yfir 20 ár en okkar helstu útflutningslönd eru: Bandaríkin, Canada, Noregur, Bretland, Færeyjar o.fl. lönd. Við veitum öllum viðskiptavinum faglega þjónustu, á þeirra starfsstöðvum, um borð í þeirra fiskiskipum og í gegnum fjartengingar hvar sem þeir eru í heiminum.

Kælisérfræðingar okkar aðstoða við valið

Það er að ýmsu að hyggja þegar kemur að vali á ískrapavélum, en þá er mikilvægt að fara í gegnum markvissa þarfagreiningu sem nær m.a. til þess aflamagns sem þarf að vera hægt að kæla á ákveðnu tímabili og þess hitastigs sem sjór er við veiðarnar. Þarna geta ólík væðisvæði og árstíðabundnar sveiflur haft talsverð áhrif.

Hafðu samband

Kæling Víkurafl ehf. sérhæfir sig í lausnum til kælingar á afla allt frá því að hann kemur um borð og þar til hann er fullunninn í landi.

Ekki hika við að hafa samband við okkur. Við leggjum metnað okkar í að veita framúrskarandi þjónustu og bjóðum aðeins hágæða vöru sem við treystum og vitum að skilar auknum aflaverðmætum.

Við eigum margar tegundir af sjókælum sem henta öllum stærðum fiskiskipa.

Tölvupóstur

Heimilisfang

Shopping Basket