K-20P Ískrapavél með forkæli

K-20P ískrapavél afkastar allt að 6.339 lítrum á klukkstund af 10% ískrapa og 1.858 lítrum á klukkustund af 40% ískrapa við 0°C sjávarhita. Saltinnihald þarf að vera 2,6% NaCI að lágmarki. Ískrapavélin er búin forkæli sem tryggir jöfn afköst upp að allt að 15° sjávarhita. Við hærri sjóhita er hægt stækka forkæli og til þess að tryggja rétta kælingu og jöfn kæliafköst. Sjónotkun við 15°er allt að 6.500 lítrar á klukkustund og sjósíun 30 míkron.

Ískrapavélar framleiða ískrapa úr sjó, sem er notaður til kælingar á afla þegar búið er að gera að honum. Ískrapa er hægt að dæla jafnt og þétt í kör eins og lagt er í þau eða í lokin þegar þau hafa verið fyllt af afla.

Ískrapavélin er búin nútíma stjórnbúnaði með fjartengingarmöguleikum sem opnar fyrir möguleika á fjarþjónustu.
Stjörntöflu má staðsetja nánast hvar sem er og mögulegt að hafa fleiri en einn stjórnskjá og vera með úttak fyrir ískrapa á fleiri en einum stað.

K-20P ískrapavél með forkæli - hnappur á PDF skjal.

 

K-20P ískrapavél er öflug og áreiðanleg

Ísframleiðsla á 24 klst. miðað við 0° sjóhita er 18.923 kg.

Notkun ískrapa til kælingar á afla er talin ein allra best leiðin til að ná sem bestri og jafnastri kælingu og þar með hámörkun aflaverðmæta.

Ískrapavélar frá Kælingu Víkurafli eru afrakstur áratuga þróunar og reynslu af notkun þeirra við mjög krefjandi aðstæður á Íslandsmiðum og víða um heim. Ískrapavélar eru mikið notaðar um borð í fiskiskipum en einnig af vinnslum í landi.

Fullkomin kæling frá upphafi til enda

Ískrapi gegnir lykilhlutverki við að tryggja fullkomna kælingu

Til að hámarka aflaverðmæti gegnir rétt kæling og meðferð á aflanum lykil hlutverki. Ískrapi er talin besta leiðin til að ná jafnri og réttri kælingu á afla. Ískrapi hefur þann eiginleika að smjúga um allt og nær þannig að umliggja hvern fisk sem tryggir jafnari og betri kælingu. Ískrapi vinnur gegn blettum í roði og merkjum um ójafna kælingu.

K-20P ískrapavél í hnotskurn

K-20P getur framleitt allt að 6.339 lítra af 10% ískrapa á klukkustund og allt að 1.858 lítra af 40% ískrapa á klukkustund miðað við 0°sjóhita inn á ískrapavélina. Ísframleiðsla á 24 klst. miðað við 0° sjóhita er 18.923 kg.

Þessi ískrapavél er búin forkæli sem tryggir jöfn afköst við allt að 15°C sjóhita.

Saltinnihald þarf að vera 2,6% NaCI að lágmarki. Ef auka þarf saltinnihald er hægt að nýta saltpækilkerfi. Sjónotkun við 15°C er allt að 6.500 lítrar á klukkustund og sjósíun 30 míkron.

 
Spennugjafi: 3x 230 V / 3x 400 V
Orkunotkun: 48 kW
Kæliafköst í kW: 75 kW
Kæliafköst: 64.655 kcal/klst
Ískrapaframleiðslugeta 10% ís við 0°C sjóhita: 6.339 l/klst.
Ískrapaframleiðslugeta 40% ís við 0°C sjóhita: 1.858 l/klst.
Ísframleiðslugeta á 24 klst. við 0°C sjóhita: 18.923 kg.
Forkælir tryggir jöfn afköst við sjávarhita upp að: 15°C
Lágmarks saltinnihald: 2,6% NaCl
Stærð (LxBxH): 2000x1300x1850 mm
Þyngd: 1.780 kg
Kælimiðill: R404A / R449A
Sjósíun: 30 míkron
Sjónotkun við kælingu á búnaði við 15° sjávarhita: 6.500 l/klst.

Af hverju að nota ískrapa

Ein besta leiðin til að kæla fisk er með ískrapa

Ískrapi er ein besta kælileið fyrir sjávarafla og sjávarfang sem er í boði. Ískrapi umleikur allan aflann og tryggir þannig jafnari og betri kælingu t.d. í samanburði við hefðbundinn ís. Flekkir á roði vegna ójafnrar kælingar heyra sögunni til. Auðvelt að dæla ískrapanum þar sem best er nýta hann í ferlinu hvort sem það er á sjó eða í landi.

Þykkni ískrapa er stillanlegt

VinsældIr ískrapa fara ört vaxandi bæði á sjó og í landi. Ískrapi hentar afar vel fyrir allan afla úr sjó og einnig önnur matvæli. Þykkni ískrapa getur verið misjafnt frá 10% upp í 40% ísþykkni á móti sjó. Þunnur ískrapi 10-20% er notaður við vinnslu en þykkari upp í 40% þegar ísa á afla niður í kör.

Fyrir fiskiskip og vinnslur í landi

Vinsældir ískrapa fara ört vaxandi bæði á sjó og í landi. Ískrapi hentar afar vel fyrir allan afla úr sjó og einnig önnur matvæli. Þykkni ískrapa getur verið misjafnt frá 10% í 40% ísþykkni á móti sjó. Þunnur ís 10-20% er notaður við vinnslu en þykkari upp í 40% þegar ísa á afla niður í kör.

Ískrapavélar eru mikið notaðar um borð í  fiskiskipum en einnig talsvert hjá fiskvinnslum í landi. Ískrapavélar eru fáanlegar stöðluðum útfærslum en einnig sérhannaðar fyrir allar stærðir fiskiskipa og fiskvinnslur. 

Fyrirferðalítill búnaður

Sveigjanleiki í uppsetningu

Ískrapavélar taka lítið pláss miðað við afköst og eru samsettar úr sjálfstæðum einingum. Sveigjanleiki í uppsetningu er því mjög mikill þannig að ískrapavélum hefur alltaf verið komið fyrir þrátt fyrir takmarkað pláss.

Stjórnborð fyrir ískrapavélar eru tölvustýrð og með snertiskjá. Tengja má mörg stjórnborð við hverja ískrapavél. Algengt er að vera með stjórntölvu í brú og aðra á vinnsludekki.

 

Lagnakerfi fyrir ískrapa

Með sérstöku lagnakerfi má leiða ískrapa í rörum um allt skip eða vinnslur í landi. Þannig er mögulegt að nýta eina ískrapavél til að framleiða ískrapa fyrir margar stöðvar. Lagnir eru leiddar frá ískrapavél á þann stað eða staði þar sem nýta þarf ískrapann. 

Ending og áreiðanleiki

Reikna má með endingu í allt að 25 ár

Við hönnun og framleiðslu á ískrapavélum frá Kælingu Víkurafli er ávallt valinn besti mögulegi búnaður og bestu fáanleg efni á hverjum tíma. Ískrapavélarnar frá okkur hafa m.a. þá sérstöðu að vera framleiddir með títanplötuvarmaskipti sem eykur bæði afköst og endingu verulega.

Með reglulegu viðhaldi og uppfærslum á sjókælum má reikna með endingu í allt að 25 ár eða jafnvel lengur.

Forkælir tryggir jöfn afköst

Ískrapavélar eru fáanlegar í mörgum útfærslum, hægt er að velja á milli loftkælingar eða sjókælingar og hvort þær séu með forkæli eða án.

Með því að hafa forkæli er hægt að tryggja jöfn afköst á ískrapaframleiðslu við sjóhita allt að 15°C. Þetta getur verið mjög mikilvægt þar sem sjávarhiti getur verið ólíkur á milli miða of mikilvægt að reikna út afskasta getu miðað við þær veiðar og þau mið sem á að sækja.

Við hærri sjóhita er hægt stækka forkæli til þess að tryggja rétta kælingu og næg kæliafköst.

Ískrapi er afar hentugur til að tryggja hraða og góða kælingu

Ískrapi er afar hentugur til að tryggja hraða og jafna kælingu á afla og sjávarfangi um leið og það er búið að vinna að aflanum og áður en hann fer í geymslukælingu.

Ískrapi sem geymslukæling

Þegar afla hefur verið komið fyrir t.a.m. í fiskikörum þá er mjög áhrifaríkt að fylla í körin með ískrapa sem umliggur allan aflan í karinu og tryggir jafna og góða kælingu alla leið í land.

Til að tryggja enn betri kælingu og endingu á ískrapanum þá er gott að dreyfa hefðbundnum skelís yfir til að halda kuldanum betur í fiskikörum.

Ískrapavélar geta framleitt ískrapa niður í allt að -2° C

Algengast er að vinna með ískrapa á bilinu 0° til -2° C.

Nákvæmur nútíma stjórnbúnaður með fjartengingu

Þar sem aðstæður geta verið breytilegar t.d. eftir árstíðum er mikilvægt að stýra flæði og hitastigi ískrapa sjálfvirkt eftir aðstæðum hverju sinni. Þetta er gert með nútíma stjórnkerfi sem sér til þess að tryggja hárrétta kælingu hvernig sem aðstæður eru.

Stjörntöflu má staðsetja nánast hvar sem er og mögulegt að hafa fleiri en einn stjórnskjá.

Stýritöflur frá Kæling Víkurafl

Fjarþjónusta í boði

Stjórnbúnaður frá Kælingu Víkurafli fyrir ískrapavélar býður upp á fjartengingar sem gerir þjónustuteymi okkar mögulegt að tengjast ískrapavélum hvar sem þær eru staddar svo lengi sem það er netsamband. Fjartengingin er nýtt til að kanna stöðu ískrapavélar, þjónusta þær og fínstilla ef þess þarf.

Ískrapavélar og sjókælar vinna vel saman

Ískrapavélar eru gjarnan notaðar með sjókælum til þess að bæta orkunýtingu og afköst ískrapavéla.

Í sumum ískrapavélum líkt og þessari er innbyggður forkælir sem kemur í stað sjókæla.

Yfirleitt eru sjókælar látnir kæla niður í 0°C áður en sjó er dælt inn á ískrapavélar. Þannig er hægt að framleiða meiri ískrapa, hraðar og með mun minni orkunotkun í samanburði við að taka sjó beint inn á ískrapavélar.

Mismunandi kælivélakælingar

Mögulegt er að velja á milli ólíkra kælivélakælinga í ískrapavélum eftir því hvar þær eru notaðar og hvaða kæliaðferð er hentugust í hverju tilfelli en kæliaðferðir sem eru í boði eru:

  • Vatnskæling
  • Sjókæling
  • Loftkæling

Um borð í fiskiskipum er nær eingöngu notuð sjókæling til kælivélakælinga nema þegar fiskiskip eru gerð út á ósöltuð vötn. Fyrir ískrapavélar sem eru í landi þá er mögulegt að velja á milli vatnskælingar eða loftkælingar fyrir kælivélar. Loftkælingar eru eingöngu notaðar í landi.

Fyrir mikla ískrapanotkun á stuttum tíma

Ískrapatankar

Ískrapatankar eru mjög góð lausn við þær aðstæður þar sem nota þarf mikinn ískrapa á stuttum tíma. Ískrapi er framleiddur í ískrapavélum og dælt í ískrapatanka þar sem ískrapanum er haldið við það hitastig sem á að nota.

Þegar ískrapa er dælt út af tönkunum þá sér sjálfvirkur stýribúnaður til þess að ískrapavél framleiði ískrapa og dæli inn á tankinn eftir þörfum.

Nánar >>

Ískrapatankar tankar fyrir ískrapa frá Kælingu Ístankar

Sala og þjónusta á ískrapavélum um allan heim

Kæling Víkurafl býður ískrapavélar og annan kælibúnað til sölu til viðskiptavina um allan heim. Kæling Víkurafl hefur mjög sterka stöðu á íslenskum markaði þar sem við höfum starfað í yfir 20 ár en okkar helstu útflutningslönd eru: Bandaríkin, Canada, Noregur, Bretland, Færeyjar o.fl. lönd. Við veitum öllum viðskiptavinum faglega þjónustu, á þeirra starfsstöðvum, um borð í þeirra fiskiskipum og í gegnum fjartengingar hvar sem þeir eru í heiminum.

Kælisérfræðingar okkar aðstoða við valið

Það er að ýmsu að hyggja þegar kemur að vali á ískrapavélum, en þá er mikilvægt að fara í gegnum markvissa þarfagreiningu sem nær m.a. til þess aflamagns sem þarf að vera hægt að kæla á ákveðnu tímabili og þess hitastigs sem sjór er við veiðarnar. Þarna geta ólík væðisvæði og árstíðabundnar sveiflur haft talsverð áhrif.

Hafðu samband

Kæling Víkurafl ehf. sérhæfir sig í lausnum til kælingar á afla allt frá því að hann kemur um borð og þar til hann er fullunninn í landi.

Ekki hika við að hafa samband við okkur. Við leggjum metnað okkar í að veita framúrskarandi þjónustu og bjóðum aðeins hágæða vöru sem við treystum og vitum að skilar auknum aflaverðmætum.

Við eigum margar tegundir af sjókælum sem henta öllum stærðum fiskiskipa.

Tölvupóstur

Heimilisfang

Shopping Basket