K-16P Ískrapavél með forkæli

K-16P ískrapavél hefur framleiðslugetu upp á allt að 5.071 lítra af 10% ískrapa og 1.486 af 40% ískrapa á klukkustund. Þessi ískrapavél er búinn forkæli sem tryggir jöfn afköst við allt að 15°C sjóhita. Saltinnihald þarf að vera 2,6% NaCI að lágmarki. Ef auka þarf saltinnihald er hægt að nýta saltpækilkerfi. Sjónotkun við 15°er allt að 5.500 lítrar á klukkustund og sjósíun 30 míkron.

Ískrapavélar framleiða ískrapa úr sjó, sem er notaður til kælingar á afla þegar búið er að gera að honum. Ískrapa er hægt að dæla jafnt og þétt í kör eins og lagt er í þau eða í lokin þegar þau hafa verið fyllt af afla.

 

K-16P ískrapavél er öflug og áreiðanleg

Afkastar allt að 5.071 lítrum af 10% ískrapa á klukkustund.

Sjókælar frá Kælingu Víkurafli eru afrakstur áratuga þróunar og reynslu af notkun þeirra við mjög krefjandi aðstæður á Íslandsmiðum og víða annars staðar um heiminn. Sjókælar frá okkur eru í hæsta gæðaflokki og hannaðir fyrir þá sem vilja nýta nútíma kælitækni og hámarka aflaverðmæti.

Fullkomin kæling frá upphafi til enda

Ískrapi gegnir lykilhlutverki við að tryggja fullkomna kælingu

Til að hámarka aflaverðmæti gegnir rétt kæling og meðferð á aflanum lykil hlutverki. Ískrapi er talin besta leiðin til að ná jafnri og réttri kælingu á afla. Ískrapi hefur þann eiginleika að smjúga um allt og nær þannig að umliggja hvern fisk sem tryggir jafnari og betri kælingu. Vinnu gegn blettum í roði og merkjum um ójafna kælingu.

K-16P ískrapavél í hnotskurn

K-16P ískrapavél getur framleitt allt að 5.071 lítra af 10% ískrapa eða 1.486 lítra af 40% ískrapa á klukkustund. Ískrapavélin er búinn forkæli sem tryggir jöfn afköst við allt að 15° C sjóhita. Saltinnihald þarf að vera 2,6% NaCI að lágmarki. Ef auka þarf saltinnihald er hægt að nýta saltpækilkerfi. Sjónotkun við 15° er allt að 5.500 lítrar á klukkustund og sjósíun 30 míkron.
Spennugjafi: 3x 230 V / 3x 400V
Orkunotkun: 45 kW
Kæliafköst: kW
Kæliafköst: 50.464 kcal/klst
Ískrapaframleiðslugeta 10% ís við 0°C sjóhita: 5.071 l/klst.
Ískrapaframleiðslugeta 40% ís við 0°C sjóhita: 1.486 l/klst.
Ískrapaframleiðslugeta yfir 24 klst. við 0°C sjóhita: 15.139 kg.
Forkælir tryggir jöfn afköst við sjávarhita upp að: 15°C.
Lágmarks saltinnihald: 2,6% NaCl
Stærð (LxBxH): 2000x1300x1850 mm
Þyngd: 1.480 kg
Kælimiðill: R404A / R449A
Sjósíun: 30 míkron
Sjónotkun við kælingu á búnaði við 15° sjávarhita: 5.500 l/klst.

Af hverju að nota ískrapa

Ein besta leiðin til að kæla fisk er með ískrapa

Ískrapi er ein besta kælileið fyrir sjávarafla og sjávarfang sem er í boði. Ískrapi umleikur allan aflann og tryggir þannig jafnari og betri kælingu t.d. í samanburði við hefðbundinn ís. Flekkir á roði vegna ójafnrar kælingar heyra sögunni til. Auðvelt að dæla ískrapanum þar sem best er nýta hann í ferlinu hvort sem það er á sjó eða í landi.

Þykkni ískrapa er stillanlegt

VinsældIr ískrapa fara ört vaxandi bæði á sjó og í landi. Ískrapi hentar afar vel fyrir allan afla úr sjó og einnig önnur matvæli. Þykkni ískrapa getur verið misjafnt frá 15% upp í 40% ísþykkni á móti sjó. Þunnur ískrapi 15-20% er notaður við vinnslu en þykkari upp í 40% þegar ísa á afla niður í kör.

Fyrir fiskiskip og vinnslur í landi

Ískrapavélar eru mikið notaðar um borð í fiskiskipum en einnig í ákveðnum tilfellum fyrir vinnslur í landi.

Ískrapavélar eru fáanlegar í mörgum stöðluðum útfærslum en einnig sérhannaðar fyrir allar stærðir fiskiskipa og fiskvinnslur í landi.

Fyrirferðalítill búnaður

Sveigjanleiki í uppsetningu

Ískrapavélar taka lítið pláss miðað við afköst og eru samsettar úr sjálfstæðum einingum. Sveigjanleiki í uppsetningu er því mjög mikill þannig að ískrapavélum hefur alltaf verið komið fyrir þrátt fyrir takmarkað pláss. Stjórnborð fyrir ískrapavélar eru tölvustýrð og með snertiskjá. Tengja má mörg stjórnborð við hverja ískrapavél. Algengt er að vera með stjórntölvu í brú og aðra á vinnsludekki. Lagnir eru leiddar frá ískrapavél á þann stað eða staði þar sem nýta þarf ískrapann

Ending og áreiðanleiki

Reikna má með endingu í allt að 25 ár

Við hönnun og framleiðslu á ískrapavélum frá Kælingu Víkurafli er ávallt valinn besti mögulegi búnaður og bestu fáanleg efni á hverjum tíma. Ískrapavélarnar frá okkur hafa m.a. þá sérstöðu að vera framleiddir með títanplötuvarmaskipti sem eykur bæði afköst og endingu verulega.

Með reglulegu viðhaldi uppfærslum á sjókælum má reikna með endingu í allt að 25 ár eða jafnvel lengur.

Ískrapi er afar hentugur til að tryggja hraða og góða kælingu

Ískrapi er afar hentugur til að tryggja hraða og jafna kælingu á afla og sjávarfangi um leið og það er búið að vinna að aflanum og áður en hann fer í geymslukælingu.

Ískrapi sem geymslukæling

Þegar afla hefur verið komið fyrir t.a.m. í fiskikörum þá er mjög áhrifaríkt að fylla í körin með ískrapa sem umliggur allan aflan í karinu og tryggir jafna og góða kælingu alla leið í land.

Til að tryggja enn betri kælingu og endingu á ískrapanum þá er gott að dreyfa hefðbundnum skelís yfir til að halda kuldanum betur í fiskikörum.

Ískrapavélar geta framleitt ískrapa niður í allt að -2° C

Algengast er að vinna með ískrapa á bilinu 0° til -2° C.

Sjávarhiti hefur áhrif á afköst

Eftir því sem sjór er kaldari þá aukast afköst sjókæla sem eru með „max flow“ virkn sem virkar þannig að hugbúnaður kerfisins leitast við að halda stöðugur hitastigi frá kælinum, óháð sjóflæði . Þess vegna er mikill munur á afkastagetu (flæði)  eftir því hvort sjávarhiti er 5°C eða 20 °C. Þennan sjókæli er hægt að fá með „Max flow“ útfærslu.

Lagnakerfi fyrir ískrapa

Með sérstöku lagnakerfi má leiða ískrapa í rörum um allt skipa eða fiskvinnslur í landi. Þannig er mögulegt að nýta eina ískrapavél til að framleiða ískrapa fyrir margar stöðvar. 

Nákvæmur nútíma stjórnbúnaður með fjartengingu

Þar sem aðstæður geta verið breytilegar t.d. eftir árstíðum er mikilvægt að stýra flæði og hitastigi ískrapa sjálfvirkt eftir aðstæðum hverju sinni. Þetta er gert með nútíma stjórnkerfi sem sér til þess að tryggja hárrétta kælingu hvernig sem aðstæður eru.

Stjörntöflu má staðsetja nánast hvar sem er og mögulegt að hafa fleiri en einn stjórnskjá.

Stýritöflur frá Kæling Víkurafl

Fjarþjónusta í boði

Stjórnbúnaður frá Kælingu Víkurafli fyrir ískrapavélar býður upp á fjartengingar sem gerir þjónustuteymi okkar mögulegt að tengjast ískrapavélum hvar sem þær eru staddar svo lengi sem það er netsamband. Fjartengingin er nýtt til að kanna stöðu ískrapavélar, þjónusta þær og fínstilla ef þess þarf.

Ískrapavélar og sjókælar vinna vel saman

Ískrapavélar eru gjarnan notaðar með sjókælum til þess að bæta orkunýtingu og afköst ískrapavéla.

Í sumum ískrapavélum líkt og þessari er innbyggður forkælir sem kemur í stað sjókæla.

Yfirleitt eru sjókælar látnir kæla niður í 0°C áður en sjó er dælt inn á ískrapavélar. Þannig er hægt að framleiða meiri ískrapa, hraðar og með mun minni orkunotkun í samanburði við að taka sjó beint inn á ískrapavélar.

Mismunandi kælivélakælingar

Mögulegt er að velja á milli ólíkra kælivélakælinga í ískrapavélum eftir því hvar þær eru notaðar og hvaða kæliaðferð er hentugust í hverju tilfelli en kæliaðferðir sem eru í boði eru:

  • Vatnskæling
  • Sjókæling
  • Loftkæling

Um borð í fiskiskipum er nær eingöngu notuð sjókæling til kælivélakælinga nema þegar fiskiskip eru gerð út á ósöltuð vötn. Fyrir ískrapavélar sem eru í landi þá er mögulegt að velja á milli vatnskælingar eða loftkælingar fyrir kælivélar. Loftkælingar eru eingöngu notaðar í landi.

Söfnun ískrapa í ískrapatanka

Við þær aðstæður þar sem nota þarf mikinn ískrapa á stuttum tíma þá er ískrapa gjarnan safnað í ískrapatanka þar sem ískrapa er haldið við rétt hitastig og þannig hægt að grípa til hans þegar þess er þörf.

Ískrapatankar tankar fyrir ískrapa frá Kælingu Ístankar

Sala og þjónusta ískrapavéla um allan heim

Kæling Víkurafl býður ískrapavélar og annan kælibúnað til sölu til viðskiptavina um allan heim. Kæling Víkurafl hefur mjög sterka stöðu á íslenskum markaði en okkar helstu útflutningslönd eru m.a. Bandaríkin, Canada, Noregur, Bretland, Færeyjar o.fl. lönd. Við veitum öllum okkar erlendu viðskiptavinum faglega þjónustu, á þeirra starfsstöðvum, um borð í þeirra fiskiskipum og í gegnum fjartengingar.

Kælisérfræðingar okkar aðstoða við valið

Það er að ýmsu að hyggja þegar kemur að vali á ískrapavélum, en þá er mikilvægt að fara í gegnum markvissa þarfagreiningu sem nær m.a. til þess aflamagns sem þarf að vera hægt að kæla á ákveðnu tímabili og þess hitastigs sem sjór er við veiðarnar. Þarna geta ólík væðisvæði og árstíðabundnar sveiflur haft talsverð áhrif.

Hafðu samband

Ekki hika við að hafa samband við okkur. Við leggjum metnað okkar í að veita framúrskarandi þjónustu og bjóðum aðeins hágæða vöru sem við treystum og vitum að skilar auknum aflaverðmætum.

Við eigum margar tegundir af sjókælum sem henta öllum stærðum fiskiskipa.

Tölvupóstur

Heimilisfang

Shopping Basket