HYDRA fjölvirkt kæilikerfi

Nýr búnaður sem umbreytir eldri kælikerfum í umhverfisvænar lausnir.

Kæling býður nú Hydru sem er fjölvirkt kælikerfi og hannað til tengjast

eldri kælikerfum og minnka eldri óumhverfisvæna kælimiðla niður um allt að 90% og þarf mun minni orku til að skila sömu kæliafköstum.

Hydra í hnotskurn

Einföld og fljótleg leið til að gera eldri kerfi umhverfisvæn og hagkvæmari í rekstri.

  • Minnkar notkun á óumhverfisvænum kælimiðlum um allt að 90%
  • Kælir betur
  • Notar 30% minni orku
  • Margfallt minni rekstraráhætta
  • Stuttur uppsetningartími
  • Auðvelt að koma fyrir
  • Eykur nýtingu á eldri fjárfestingu í kælikerfum
  • Hagkvæm fjárfesting sem skilar sér hratt
HYDRA fjölvirk kælilausn sem breytir eldri kælikerfum í umhverfisvænar og rekstrarhagkvæmari lausnir

HYDRA fjölvirkt kælikerfi

Hydra kælispíralar í lestarkælingu

Freon minnkað um allt að 90%

Freonið er eingöngu í kjarna kælikerfisins og kælingin flutt yfir í umhverfisvæna kælimiðla líkt og glýcol með varmaskiptitækni. Glýcolinu er það efni sem streymi um rör og kælispírala á þá staði sem eiginleg kæling fer fram.

Fullnýttu fjárfestinguna

Uppfærsla á eldri kælikerfum yfir í umhverfisvæna kælimiðla.

Minnkaðu freon notkun um allt að 90%

Nú er tækifæri til að uppfæra eldri kælikerfi um borð með því að fara í Hybrid F/A lausn sem getur minnkað freon notkun um allt að 90%. 

Freonið er eingöngu í kjarna kælikerfisins og kælingin flutt yfir í umhverfisvæna kælimiðla líkt og glýcol með varmaskiptitækni. Glýcolinu er það efni sem streymi um rör og kælispírala á þá staði sem eiginleg kæling fer fram.

Ávinningurinn er mikill þar sem hætta á Freonlekum er margfallt minni og þá staðbundin.  Sparnaðurinn byrjar strax að skila sér með meiri kæliafköstum og kaup á Freoni líklega úr sögunni næsta áratuginn auk jákvæðra umhverfisáhrifa. 

Betri kæling með allt að 30% minni orku

Hydran tryggir betri kælingu með allt að 30% minni orku og áður auk þess sem kælingin verður betri t.d. á kælispírölum þar sem ísmyndun er mun minni.

HYDRA fjölvirk kælilausn sem breytir eldri kælikerfum í umhverfisvænar og rekstrarhagkvæmari lausnir

Hydran getur tengst öllum eldri kælikerfum frá Kælingu og mörgum kerfum frá öðrum framleiðendum.

Hætta á leka í lágmarki

Hætta á tjóni vegna leka er lágmörkuð. Hætta á tjóni vegna Freon leka er á mjög afmörkuðu svæði og með vöktun er hægt að grípa strax inn í og koma í veg fyrir tjón. Komi upp glýcol leki þá er kostnaður við slíkan leka margfallt minni í samanburði við freon auk þess sem glýcolið getur ekki valdið skaða t.d. með því að skemma afla þar sem vottað matvæla glýcol er á um 90% af kerfinu.

Einstök leið til að hámarka nýtingu eldri fjárfestinga, minnka rekstraráhættu og draga úr rekstrarkostnaði.

Hydra stuttur uppsetningartími um borð í fiskiskipum

Stuttur uppsetningartími

Hydra er hönnuð með það fyrir augum að uppsetning taki stuttan tíma. Öllu er haganlega komið fyrir þannig að Hydra taki lítið pláss og því auðvelt að koma henni fyrir. Lausnin er að stærstum hluta stöðluð og einungis lítill hluti hennar sem þarf að aðlaga að hverju skipi eða stað. Algengur tími við umskipti er 2 vikur.

Endurnýting eldri fjárfestinga og með aukinni rekstrahagvæmni

Í stað þess að skipta alfarið um kerfi þá eru eldri fjárfestingar nýttar að stórum hluta á sama tíma og þær eru gerðar mun hagkvæmari og umhverfisvænni.

Hydra getur verið fljót að borga sig upp

Með því að velja Hydru lausn Kælingar er ekki eingöngu tekið mikilvæg skref í umhverfismálum og rekstraráhætta sem fylgir freon kerfum er minnkuð verulega. En fyrst og fremst er felst rekstrarlegur ávinningur í mun minni orkunotkun. Algent er að orkunotkun við samsvarandi kæliafköst minnki um 50%.

Fyrir lestakælingar með blásurum eða kælispírölum

Hvort sem notast er við kæliblásara eða kælispírala í lestum þá hentar Hydran afar vel við þessar aðferðir. Það skiptir ekki máli hvaða aðferð notuð er við lestarkælingu, Hydran gjörbreytt rekstri eldri kerfa.

Hydra kælispíralar í lestarkælingu

Dæmi um notkun á Hydru

Hafðu samband og kannað með þína lausn

  • Lestarkælikerfi með kæliblásurum
  • Lestarkælikerfi með kælispírölum

Hafðu samband og fáðu aðstoð sérfræðinga við að setja upp sérhæfða kælilausnir sem henta ykkar starfsemi.