Kælilausnir fyrir fiskvinnslur

Sérhannaðar kælilausnir fyrir fiskvinnslur

Kæling veitir fiskvinnslum og öðrum fyrirtækjum í sjávarútvegi fjölþættar og sérsniðnar kælilausnir auk allrar þjónustu við kælibúnað. Kæling annast hönnun, uppsetningu og viðhald á kælilausnum. Fullkomin kæling frá upphafi til enda er lykilþáttur í að viðhalda gæðum og heilbrigði aflaverðmæta.

Helsti búnaður frá Kælingu fyrir fiskvinnslur

Loftkæling

Skólamatur kældur vinnslusalur með umhverfisvænum kælilausnum frá Kælingu

Nýjung

Hydra

Kæling býður nú nýtt fjölvirkt kælikerfi sem ber heitið Hydra og hannað til tengjast eldri kælikerfum og minnka eldri óumhverfisvæna kælimiðla niður um allt að 90% og þarf mun minni orku til að skila sömu kæliafköstum.

Nánar >>

Fullkomin kæling frá upphafi til enda

Við meðferð matvæla er rétt hitastig á öllum stigum lykilatriði. Kæling býr yfir áralangri reynslu við að hanna og setja upp kælilausnir fyrir sjávarútvegsfyrirtæki.

Þjónustuteymi Kælingar annast einnig alla þjónustu og viðhald kælilausna.

Með lausnum frá Kælingu er mögulegt að meðhöndla aflaverðmæti við kjöraðstæður frá móttöku og þar til þeim er komið í flutning.

Kælilausnir fyrir fiskvinnslur í landi. Þorskar í ískrapa í fiskikeri

Kælilausnir sem henta hverju vinnslustigi og hverri vinnsluaðferð

Sérfræðingar okkar eru vanir því að takast á við ólíkar þarfir hjá ólíkum fiskvinnslum eftir vinnslustigum og vinnsluaðferðum.

Hvort sem starfsemi fiskvinnslu er fjölþætt eða einföld þá getum við hannað og sett upp lausnir sem henta fullkomlega til að hámarka gæði afurða þegar kemur að kælingu.

Hafðu samband og fáðu aðstoð sérfræðinga við að setja upp sérhæfðar kælilausnir sem henta þinni fiskvinnslu.

HYDRA

Fullnýttu eldri fjárfestingu

Breyting á eldri kælikerfum fyrir umhverfisvæna kælimiðla.

Minnkaðu freon notkun um allt að 90%

Nú er tækifæri til að uppfæra eldri kælikerfi með því að bæta inn HYDRA lausn frá Kælingu sem getur minnkað núverandi freon notkun um allt að 90%. 

Margar fiskvinnslur standa nú frammi fyrir þeirri áskorun að leysa eldri freonkerfi af hólmi.

Lengi vel hefur eini kosturinn verið að skipta alfarið út freonkerfunum með mjög miklum tilkostnaði, en nú býður Kæling upp á margfalt ódýrari og einfaldari lausn sem nefnist HYDRA. HYDRA lausnir eru hybrid f/a (freon/ammoníak) eða blendingslausnir þar sem lítill hluti kerfisins er með freoni þar sem upprunalega kælingin fer fram en hún er flutt yfir í vatnsblandað ammoníak með kuldaberum. 

Ammoníaks blöndunni er dælt um lokaðar hringrásir þangað sem kælingar er þörf. Við þetta minnkar freon magnið sem þarf á hvert kerfi um allt að 90% og um leið verður kerfið öruggara, hagkvæmara og umhverfisvænna. 

Ávinningurinn er mikill þar sem hætta á freonlekum er margfalt minni og þá staðbundin.  Sparnaðurinn byrjar strax að skila sér með auknum kæliafköstum og kaup á freoni líklega úr sögunni næsta áratuginn auk jákvæðra umhverfisáhrifa. 

Kæling á óslægðum afla

Í þeim vinnslum þar sem tekið er á móti óslægðum afla er gjarnan unnið með sjókæla og ískrapavélar á fyrstu stigum vinnslunnar.

Kæling býður tilbúnar og sérsniðnar kælilausnir fyrir fullkomna kælingu á óslægðum afla hjá fiskvinnslum.

KP-100 sjókælir frá Kælingu fyrir kælingu á sjó

Sérsniðnar kælilausnir fyrir þarfir hverrar fiskvinnslu.

Aðstæður eru gjarnan mjög ólíkar frá einum stað til annars. Kæling býður því sérsniðnar lausnir sem taka mið af umhverfi og þörfum hvers og eins.

Sjókælar

Kældur sjór er afar hentugur til að tryggja rétt hitastig afla á öllum stigum allt frá því að honum er landað og þar til geymslukæling hefst.

Sjókælar geta boðið upp á fleiri en einn útgang fyrir kældan sjó þar sem hver og einn er með ólíkt hitastig fyrir hvert þrep  vinnslunnar. Þannig er hægt að vera með fullkomna kælingu á öllum stigum og hámarka gæði afla.

Rétt kæling hægir á vexti gerla og minnkar virkni ensíma.

KP-100 sjókælir frá Kælingu fyrir kælingu á sjó
Hringrásarsjókælar RSW system Recirclelated Sea Water system

Hringrásarsjókælar - RSW

Allir sömu kostir og venjulegir sjókælar með mörg úttök með miskældum sjó en miklu minni orkunotkun. Kældur sjór sem hefur farið í gegnum einhvern hluta vinnslu og meðhöndlun á afla er síaður og hreinsaður áðu en hann fer aftur inn í kælispírala og þaðan aftur út til notkunar.

Þannig er kaldur sjórinn nýttur aftur og aftur og minna haft fyrir að kæla hann niður í rétt hitastig miðað við að taka eingöngu ferskan sjó inn á kerfið. Umhverfisvæn leið sem getur borgað sig á skömmum tíma.

Ískrapavélar

Ískrapi er ein allra besta kælileið fyrir afla sem er í boði. Ískrapi umleikur allan aflann og tryggir þannig jafnari og betri kælingu t.d. í samanburði við hefðbundinn skelís.  Flekkir á roði vegna ójafnrar kælingar heyra sögunni til. Auðvelt er að dæla ískrapa gegnum leiðslur á þá staði þar sem á að nýta hann hvort sem það eru einn eða fleiri staðir um borð í skipum eða í landi.

Ískrapavélar fyrir ískrapa úr sjó
Ískrapatankar tankar fyrir ískrapa frá Kælingu Ístankar

Ískrapatankar

Ískrapatankar fyrir geymslu á ískrapa. Hentug leið til að geta mætt þörf á miklu magni af ískrapa á skömmum tíma sem er umfram það sem ískrapavélar afkasta.

Í tönkunum er hræribúnaður sem kemur í veg fyrir að sjór og ís aðskiljist. Á öðrum enda tanksins er dælubúnaður fyrir ískrapann. Hann virkar með þeim hætti að þegar að opnað er fyrir ískrapaloka þá fer ískrapadælan sjálfvirkt í gang og stöðvast þegar lokað er fyrir.

Skelísvélar

Skelís getur verið hentugur til kælinga í mörgum tilfellum. Hjá Kælingu eru í boði vandaðar og áreiðanlegar skelísvélar sem hægt er að fá í mismunandi stærðum og gerðum.

KI-8TF skelísvél frá Kælingu
Ferskvatnskælar frá Kælingu

Vatnskælar

Hér á Íslandi höfum við á flestum stöðum nægjanlegt ferskvatn til að vinna með. Það getur hins vegar reynst afar dýrmætt að geta stýrt af nákvæmni hitastiginu á vatninu.

Árstíðabundnar sveiflur í ferskvatni geta haft áhrif á gæði afurða og því mikilvægt að stýra með nákvæmum hætti kjörhitastigi á vatni til vinnslu.

Nýr stjórnbúnaður

Uppfærsla á eldri kælikerfum sem bæta alla stjórnun og rekstraröryggi

Stuttur viðbragðstími með fjarþjónustu

Kæling hefur þróað afar öruggan og nákvæman rafeindastýrðan stjórnbúnað sem fylgir öllum nýjum  kælilausnum en einnig hægt að fá fyrir eldri lausnir frá Kælingu.

Nýr stjórnbúnaður opnar fyrir fjarþjónustu. Nú er hægt að greina og leysa vandamál án þess að þjónustuteymi Kælingar þurfi að mæta á staðinn.  Afköstum er stýrt með mun nákvæmari hætti og orkunýting mun betri.

Nákvæmar greiningar og álagsstýringar bæta rekstraröryggi og endingu búnaðar sem hefur verið rýflega 15 ár með eldri stjórnbúnaði.

Uppfærsla sem getur borgað sig hratt til baka. Nýr stjórnbúnaður býr yfir mun nákvæmari stillingum á hitastigi og stjórnar opnunum og lokunum með mun nákvæmari hætti en áður hefur þekkst. Þetta þýðir mun nákvæmara hitastig, mikinn raforkusparnað, skráningu upplýsinga um stöðu kerfis og búnað því tengdu, fjarþjónustu og vöktun. Taktu örugg skref í átt að sparnaði með Kælingu. 

Stjórnun hitastigs í vinnslurýmum

Lofthitastig í þeim rýmum sem afurðir fara í gegnum er mikilvægur þáttur í öllu ferlinu. Kæling býður alhliða lausnir frá því að setja upp rýmin og tryggja að rétt hitastig haldist þrátt fyrir umferð starfsmanna og vinnutækja.

Kæliklefar af öllum stærðum og gerðum frá Kælingu

Kælirými af öllum stærðum og gerðum

Í upphafi er valinn kælibúnaður og kælirými sem henta umsvifum á hverjum stað. En á sama tíma er mikilvægt að hanna og velja búnað sem getur stutt við vöxt hjá fyrirtækinu.

Með náinni samvinnu afhendum við lausnir sem styðja við markmið fyrirtækja um vöxt og gæði afurða.

Hafðu samband og fáðu aðstoð sérfræðinga við að setja upp sérhæfðar kælilausnir sem henta ykkar starfsemi.

Þegar lausnirnar þurfa að vera færanlegar eða húsnæði er takmarkað

K40PX2 ískrapavél frá Kælingu. Færanleg Ískrapaverksmiðja. Ískrapi til kælingar á sjávarafla. Ískrapavélar í gám sem hægt er að vinna með hvar sem er.

Kælilausnir í færanlegum gámum

Kæling býður fjölmargar útfærslur á færanlegum lausnum sem geta hentað fiskvinnslufyrirtækjum afar vel.

Mögulegt er að fá nánast allan búnað í gámaútfærslum en einnig samsettar lausnir líkt og K-40PX2 sem er færanleg ískrapaverksmiðja í 40 feta gám.

Gámalausnirnar eru frábær leið til að mæta þörfum á öflugum kælilausnum til lengri og skemmri tíma.

Með gámalausnum er hægt að færa lausnirnar á milli staða eftir þörfum hverju sinni.

Gámalausnir eru einnig frábær lausn þegar ekki er til staðar hentugt húsnæði eða ekkert pláss fyrir kælilausnir. En þá má koma fyrir gám eða gámum á athafnasvæði og tengja við vinnsluhúsnæði.

Uppsetning gámalausna á athafnasvæði getur verið mun einfaldari og fljótlegri leið en að koma búnaði fyrir inni í húsnæði.

Hafðu samband og kynntu þér alla kosti og þá möguleika sem eru í boði í gámalausnum frá Kælingu.