Kæling framleiðir vandaða Ístanka fyrir geymslu á ískrapa. Ístankar frá Kælingu eru framleiddir úr plasti með tvöföldum vegg sem myndar þannig góða einangrun. Inni í ístanknum er hræribúnaður sem kemur í veg fyrir að sjór og ís aðskiljist. Á öðrum enda tanksins er dælubúnaður fyrir ískrapann. Hann virkar með þeim hætti að þegar að opnað er fyrir ískrapaloka t.d. í lest á skipi, þá fer ískrapadælan sjálfvirkt í gang og stöðvast þegar lokað er fyrir. Ístankar eru hentugir þar sem þörf er á miklum ískrapa á stuttum tíma og eru fáanlegir í nokkrum stærðum.
1500 lítra rúmmál. (LxBxH) 1800x1340x1460 mm
2000 lítra rúmmál. (LxBxH) 2310x1340x1460 mm
3000 lítra rúmmál. (LxBxH) 3230x1340x1460 mm (sjá mynd)
4000 lítra rúmmál. (LxBxH) 4160x1340x1460 mm
Kæling býður vandaða ístanka
Allt frá dagróðrabátum upp í stærstu togara. Ef þú vilt hámarka ferskleika þinna sjávarafurða þá er Kæling með lausnirnar fyrir þig.